logo-for-printing

30. desember 2014

Endurskoðun á gjaldmiðlavogum 2014

Gjaldmiðlavogum sem liggja til grundvallar útreikningum á vísitölum meðalgengis hefur verið breytt í ljósi utanríkisviðskipta ársins 2013. Endurskoðun fór síðast fram í upphafi árs 2014. Meðfylgjandi töflur sýna nýju vogirnar og breytingar frá fyrri vogum. Nýju vogirnar gilda frá og með 1. janúar 2015 til næstu endurskoðunar að ári.

Gjaldmiðlavogirnar eru endurskoðaðar árlega í ljósi samsetningar utanríkisviðskipta árið áður. Markmiðið er að þær endurspegli eins vel og kostur er samsetningu vöru- og þjónustuviðskipta þjóðarinnar. Árið 2011 hóf Hagstofa Íslands að afla upplýsinga um landaskiptingu þjónustuviðskipta og því byggist val á gjaldmiðlum í vogir nú á 3 ára meðaltali vöru- og þjónustuviðskipta. Helstu breytingar frá fyrri vogum eru eftirfarandi:

Þröng vöruskiptavog (A), þröng þjónustuvog (C) og þröng viðskiptavog (E):

  • Engin breyting

Víð vöruskiptavog (B), víð þjónustuvog (D) og víð viðskiptavog (F):

  • Venesúelskur bólivari fellur út

  • Indversk rúpía fellur út

  • Singapúrskur dalur bætist við

Aðrar breytingar eru þær helstar að viðskipti við Litháen teljast nú með evrusvæðinu vegna aðildar þess að evrusvæðinu frá 1. janúar 2015. Í vöruviðskiptavogum eykst vægi dönsku krónunnar, brasilíska ríalsins, kínverska júansins, og evrunnar, en vægi norsku krónunnar, rússnesku rúblunnar, breska pundsins og Bandaríkjadals minnkar. Helstu breytingar á þjónustuvog eru aukið vægi singapúrsks dals, svissneska frankans og Bandaríkjadals, en vægi breska pundsins og gjaldmiðla hinna Norðurlandanna minnkar. Viðskiptavogirnar endurspegla þessar breytingar að mestu leyti. Mest eykst vægi singapúrska dalsins og svissneska frankans en jafnframt eykst vægi Bandaríkjadals nokkuð. Vægi breska pundsins og norsku krónunnar minnkar hins vegar nokkuð milli ára.

Töflur er sýna nýju vogirnar og breytingar frá fyrri vogum:

Vogir 2014, byggðar á gögnum 2013

Vogir 2014

Til baka