logo-for-printing

30. desember 2015

Endurskoðun á gjaldmiðlavogum 2015

Gjaldmiðlavogum sem liggja til grundvallar útreikningum á vísitölum meðalgengis hefur verið breytt í ljósi utanríkisviðskipta ársins 2014. Endurskoðun fór síðast fram í upphafi árs 2015. Meðfylgjandi töflur sýna nýju vogirnar og breytingar frá fyrri vogum. Nýju vogirnar gilda frá og með 1. janúar 2016 til næstu endurskoðunar að ári.

Gjaldmiðlavogirnar eru endurskoðaðar árlega í ljósi samsetningar utanríkisviðskipta árið áður. Markmiðið er að þær endurspegli eins vel og kostur er samsetningu vöru- og þjónustuviðskipta þjóðarinnar. Val á gjaldmiðlum í vogir byggist á 3 ára meðalhlutdeild ríkja í vöru- og þjónustuviðskiptum landsins. Helstu breytingar frá fyrri vogum eru eftirfarandi:

Þröng vöruskiptavog (A), þröng þjónustuvog (C) og þröng viðskiptavog (E):

  • Engin breyting á gjaldmiðlum.

  Víð vöruskiptavog (B), víð þjónustuvog (D) og víð viðskiptavog (F):

  • Engin breyting á gjaldmiðlum.

Í vöruviðskiptavogum eykst vægi breska pundsins, dönsku krónunnar og rússnesku rúblunnar mest en vægi evrunnar, brasilíska ríalsins, kínverska júansins, minnkar. Helstu breytingar á þjónustuvog eru aukið vægi Bandaríkjadals, evrunnar, breska pundsins, svissneska frankans og Kanadadals en mest dregur úr vægi singapúrska dalsins auk þess sem vægi norsku krónunnar og sádi-arabíska ríalsins minnkar nokkuð. Viðskiptavogirnar endurspegla þessar breytingar að mestu leyti. Vægi breska pundsins og Bandaríkjadals aukast mest en jafnframt eykst vægi dönsku krónunnar nokkuð. Vægi evrunnar, singapúrska dalsins og brasilíska ríalsins minnkar hins vegar nokkuð milli ára.

Töflur er sýna nýju vogirnar og breytingar frá fyrri vogum:

Vogir 2015, byggðar á gögnum 2014

Vogir 2015

Til baka