logo-for-printing

30. desember 2016

Endurskoðun á gjaldmiðlavogum 2016

Gjaldmiðlavogum sem liggja til grundvallar útreikningum á vísitölum meðalgengis hefur verið breytt í ljósi utanríkisviðskipta ársins 2015. Endurskoðun fór síðast fram í upphafi árs 2016. Meðfylgjandi töflur sýna nýju vogirnar og breytingar frá fyrri vogum. Nýju vogirnar gilda frá og með 1. janúar 2017 til næstu endurskoðunar að ári.


Gjaldmiðlavogirnar eru endurskoðaðar árlega í ljósi samsetningar utanríkisviðskipta árið áður. Markmiðið er að þær endurspegli eins vel og kostur er samsetningu vöru- og þjónustuviðskipta þjóðarinnar. Val á gjaldmiðlum í vogir byggist á 3 ára meðalhlutdeild ríkja í vöru- og þjónustuviðskiptum landsins. Helstu breytingar frá fyrri vogum eru eftirfarandi:

Þröng vöruskiptavog (A), þröng þjónustuvog (C) og þröng viðskiptavog (E):
    • Pólskt slot fellur út

Víð vöruskiptavog (B), víð þjónustuvog (D) og víð viðskiptavog (F):
    • Tékknesk króna bætist við
    • Tyrknesk líra bætist við
    • Ungversk fórinta bætist við

Í vöruviðskiptavogum eykst vægi evrunnar töluvert milli ára en einnig eykst vægi kínverska júansins og Kanadadals nokkuð. Á móti minnkar vægi norsku krónunnar, rússnesku rúblunnar, Bandaríkjadals og breska pundsins mest. Helstu breytingar á þjónustuvog eru aukið vægi evrunnar, Bandaríkjadals og breska pundsins en mest dregur úr vægi dönsku krónunnar, svissneska frankans, norsku krónunnar auk þess sem vægi sænsku krónunnar og sádi-arabíska ríalsins minnkar nokkuð. Viðskiptavogirnar endurspegla þessar breytingar að mestu leyti. Vægi evrunnar, kínverska júansins og Bandaríkjadals eykst mest milli ára en vægi dönsku og norsku krónunnar auk rússnesku rúblunnar minnkar.

Töflur er sýna nýju vogirnar og breytingar frá fyrri vogum:

Vogir 2016, byggðar á gögnum 2015

Vogir 2016

Til baka