logo-for-printing

30. desember 2017

Endurskoðun á gjaldmiðlavogum 2017

Gjaldmiðlavogum sem liggja til grundvallar útreikningum á vísitölum meðalgengis hefur verið breytt í ljósi utanríkisviðskipta ársins 2016. Endurskoðun fór síðast fram í upphafi árs 2017. Meðfylgjandi töflur sýna nýju vogirnar og breytingar frá fyrri vogum. Nýju vogirnar gilda frá og með 1. janúar 2018 til næstu endurskoðunar að ári.

Gjaldmiðlavogirnar eru endurskoðaðar árlega í ljósi samsetningar utanríkisviðskipta árið áður. Markmiðið er að þær endurspegli eins vel og kostur er samsetningu vöru- og þjónustuviðskipta þjóðarinnar. Val á gjaldmiðlum í vogir byggist á 3 ára meðalhlutdeild ríkja í vöru- og þjónustuviðskiptum landsins. Helstu breytingar frá fyrri vogum eru eftirfarandi:

Þröng vöruskiptavog (A), þröng þjónustuvog (C) og þröng viðskiptavog (E):
   • Pólskt slot bætist við

Víð vöruskiptavog (B), víð þjónustuvog (D) og víð viðskiptavog (F):

   • Ástralskur dalur bætist við
   • Singapúrskur dalur fellur út

Í vöruviðskiptavogum eykst vægi Bandaríkjadals töluvert milli ára auk þess sem vægi breska pundsins eykst nokkuð. Á móti minnkar vægi brasilíska ríalsins, rússnesku rúblunnar og norsku krónunnar mest. Helstu breytingar á þjónustuvog eru aukið vægi Bandaríkjadals, evrunnar og Kanadadals en mest dregur úr vægi dönsku krónunnar, svissneska frankans og sádi-arabíska ríalsins auk þess sem vægi breska pundsins minnkar nokkuð. Viðskiptavogirnar endurspegla þessar breytingar að mestu leyti. Vægi Bandaríkjadals eykst mest milli ára en vægi brasilíska ríalsins, svissneska frankans og dönsku og norsku krónunnar minnka.

Töflur er sýna nýju vogirnar og breytingar frá fyrri vogum:

Vogir 2017

Vogir 2017

 

Til baka