logo-for-printing

30. desember 2021

Endurskoðun á gjaldmiðlavogum 2021

Gjaldmiðlavogum sem liggja til grundvallar útreikningum á vísitölum meðalgengis hefur verið breytt í ljósi utanríkisviðskipta ársins 2020. Endurskoðun fór síðast fram í upphafi árs 2021. Meðfylgjandi töflur sýna nýju vogirnar og breytingar frá fyrri vogum. Nýju vogirnar gilda frá og með 1. janúar 2022 til næstu endurskoðunar að ári.

Gjaldmiðlavogirnar eru endurskoðaðar árlega í ljósi samsetningar utanríkisviðskipta árið áður. Markmiðið er að þær endurspegli eins vel og kostur er samsetningu vöru- og þjónustuviðskipta þjóðarinnar. Val á gjaldmiðlum í vogir byggist á þriggja ára meðalhlutdeild ríkja í vöru- og þjónustuviðskiptum landsins. Helstu breytingar frá fyrri vogum eru eftirfarandi:

Þröng vöruskiptavog (A), þröng þjónustuvog (C) og þröng viðskiptavog (E):
•Brasilískt ríal bætist við
•Sádi-arabískt ríal fellur út

Víð vöruskiptavog (B), víð þjónustuvog (D) og víð viðskiptavog (F):
•Jamaískur dalur bætist við
•Suðurkóreskt vonn fellur út
•Tyrknesk líra fellur út

Í vöruviðskiptavogum eykst vægi evrunnar og brasilíska ríalsins talsvert milli ára. Á móti minnkar vægi Kanadadals, norsku krónunnar, Ástralíudals og Bandaríkjadals. Helstu breytingar á þjónustuvogum eru töluvert aukið vægi evrunnar og dönsku krónunnar auk þess sem vægi svissneska frankans eykst nokkuð. Mest dregur úr vægi Bandaríkjadals í þjónustuvogum en einnig dregur nokkuð úr vægi Kanadadals og Sterlingspunds. Viðskiptavogirnar endurspegla þessar breytingar að mestu leyti. Vægi evrunnar eykst mest milli ára auk þess sem vægi dönsku krónunnar og brasilíska ríalsins eykst nokkuð. Vægi Bandaríkjadals minnkar mest en vægi Ástralíudals og Kanadadals minnkar einnig nokkuð.

Vogir 2021

Vogir 2021

 

Eldri tilkynningar:

Til baka