logo-for-printing

08. maí 2024

Yfirlýsing peningastefnunefndar 8. maí 2024

Peningastefnunefnd - mynd tekin í upphafi fundar 7. maí 2024.
Peningastefnunefnd - mynd tekin í upphafi fundar 7. maí 2024.

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því áfram 9,25%.

Verðbólga hefur áfram hjaðnað og mældist 6% í apríl. Verðbólga án húsnæðisliðar hefur minnkað hraðar og undirliggjandi verðbólga er komin í 5%. Verðbólguvæntingar hafa lækkað á suma mælikvarða en eru enn yfir markmiði.

Hægt hefur á vexti innlendrar eftirspurnar enda er peningalegt taumhald þétt og horfur eru á að það dragi úr hagvexti í ár. Spenna í þjóðarbúskapnum er þó meiri en áður var talið og verðbólga minnkar því hægar samkvæmt nýrri spá Seðlabankans.

Áhrif nýgerðra kjarasamninga og aðgerða í ríkisfjármálum á eftirspurn eru ekki að fullu komin fram. Þótt hægt hafi á vinnumarkaði er spenna enn til staðar sem gæti ýtt undir launaskrið með tilheyrandi áhrifum á verðbólgu.

Peningastefnunefnd telur auknar líkur á því að núverandi aðhaldsstig sé hæfilegt til þess að koma verðbólgu í markmið innan ásættanlegs tíma. Mótun peningastefnunnar mun sem fyrr ráðast af þróun efnahagsumsvifa, verðbólgu og verðbólguvæntinga.

 

Frétt nr. 9/2024
8. maí 2024

Vextir verða því sem hér segir:

1. Daglán 11,0%
2. Lán gegn veði til 7 daga 10,0%
3. Innlán bundin í 7 daga 9,25%
4. Viðskiptareikningar 9,0%

 

Sjá einnig hér: Vextir og bindiskylda við Seðlabanka Íslands 8. maí 2024.


Til baka