Fara beint í Meginmál

Einstaklingar sem eru eða hafa verið háttsettir í opinberri þjónustu, ásamt nánustu fjölskyldu þeirra og nánum samstarfsmönnum eru taldir vera í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla, sbr. 6. tölulið 3. gr. laga nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.

Tilkynningarskyldum aðilum er skylt að hafa viðeigandi kerfi, ferla og aðferðir til að meta hvort innlendur eða erlendur viðskiptamaður eða raunverulegur eigandi sé í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla sbr. 1. mgr. 17. gr. laga nr. 140/2018 en við þær aðstæður skal framkvæmd aukin áreiðanleikakönnun í samræmi við 13. gr. og uppfylla kröfur 17. gr. laga nr. 140/2018.

Seðlabanka Íslands er skylt að halda lista yfir þau starfsheiti hér á landi sem teljast til háttsettra opinberra starfa, sbr. 10.gr. reglugerðar nr. 1420/2020 um einstaklinga í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla með tilliti til aðgerða gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Samkvæmt sömu grein skal listinn birtur opinberlega á vefsvæði Seðlabanka Íslands. Á listanum skal koma fram starfsheiti og nafn stofnunar, samtaka, fyrirtækis eða stjórnmálaflokks, eftir því sem við á. Listinn byggir á ákvæðum reglugerðarinnar og á upplýsingum frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu, utanríkisráðuneytinu og stjórnmálaflokkum sem eiga kjörna fulltrúa á Alþingi 1. febrúar 2021, sbr. 11. gr. reglugerðarinnar.

Tilgreining starfsheita og útgáfa neðangreinds lista hefur ekki áhrif á skyldu tilkynningarskyldra aðila samkvæmt 17. gr. laga nr. 140/2018 að meta hverju sinni hvort innlendur eða erlendur viðskiptamaður eða raunverulegur eigandi sé í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla, en hægt er að hafa listann til hliðsjónar við matið.

Listi yfir starfsheiti sem teljast til háttsettra opinberra starfa

Birt 1. febrúar 2021 I Uppfært 27. mars 2025
Forseti Íslands og ráðherrar
Forseti Íslands og ráðherrar
NafnStarfsheiti
Embætti forseta ÍslandsForseti Íslands
ForsætisráðuneytiðForsætisráðherra
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytiðMenningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra
DómsmálaráðuneytiðDómsmálaráðherra
Mennta- og barnamálaráðuneytiðMennta- og barnamálaráðherra
Fjármála- og efnahagsráðuneytiðFjármála- og efnahagsráðherra
HeilbrigðisráðuneytiðHeilbrigðisráðherra
InnviðaráðuneytiðInnviðaráðherra
Umhverfis-, orku og loftslagsráðuneytiðUmhverfis-, orku og loftslagsráðherra
UtanríkisráðuneytiðUtanríkisráðherra
Félags- og húsnæðismálaráðuneytiðFélags- og húsnæðismálaráðherra
AtvinnuvegaráðuneytiðAtvinnuvegaráðherra 
Þingmenn
Þingmenn
NafnStarfsheitiStarfsheiti
Flokkur fólksinsÞingmennVaraþingmenn sem tekið hafa fast sæti á Alþingi
FramsóknarflokkurinnÞingmennVaraþingmenn sem tekið hafa fast sæti á Alþingi
MiðflokkurinnÞingmennVaraþingmenn sem tekið hafa fast sæti á Alþingi
SamfylkinginÞingmennVaraþingmenn sem tekið hafa fast sæti á Alþingi
SjálfstæðisflokkurinnÞingmennVaraþingmenn sem tekið hafa fast sæti á Alþingi
ViðreisnÞingmennVaraþingmenn sem tekið hafa fast sæti á Alþingi
Einstaklingar í stjórnum stjórnmálaflokka
Einstaklingar í stjórnum stjórnmálaflokka
NafnStarfsheiti
Flokkur fólksinsStjórnarmenn
FramsóknarflokkurinnAðilar í framkvæmdastjórn
MiðflokkurinnStjórnarmenn
SamfylkinginStjórnarmenn
SjálfstæðisflokkurinnAðilar í framkvæmdastjórn
ViðreisnStjórnarmenn
Hæstaréttardómarar, Landsréttardómarar og dómarar við sérdómstóla og íslenskir dómarar við alþjóðadómstóla
Hæstaréttardómarar, Landsréttardómarar og dómarar við sérdómstóla og íslenskir dómarar við alþjóðadómstóla
NafnStarfsheiti
Hæstiréttur ÍslandsDómarar
LandsrétturDómarar
FélagsdómurDómarar
EndurupptökudómurDómarar
LandsdómurDómarar
Mannréttindadómstóll Evrópu (European Court of Human Rights, ECHR)Dómarar
EFTA-dómstóllinn (EFTA Court)Dómarar
Alþjóðlegi hafréttardómstóllinn (International Tribunal for the Law of the Sea, ITLOS)Dómarar
Hæstráðendur Seðlabanka Íslands og ríkisendurskoðandi
Hæstráðendur Seðlabanka Íslands og ríkisendurskoðandi
NafnStarfsheitiStarfsheiti
Seðlabanki ÍslandsSeðlabankastjóriVaraseðlabankastjórar
RíkisendurskoðandiRíkisendurskoðandi 
Sendiherrar og staðgenglar sendiherra
Sendiherrar og staðgenglar sendiherra
NafnStarfsheitiStarfsheiti
Sendiráð Íslands í BerlínSendiherraStaðgenglar sendiherra
Sendiráð Íslands í BrusselSendiherraStaðgenglar sendiherra
Sendiráð Íslands í FreetownSendiherraStaðgenglar sendiherra
Sendiráð Íslands í HelsinkiSendiherraStaðgenglar sendiherra
Sendiráð Íslands í KampalaSendiherraStaðgenglar sendiherra
Sendiráð Íslands í KaupmannahöfnSendiherraStaðgenglar sendiherra
Sendiráð Íslands í LilongweSendiherraStaðgenglar sendiherra
Sendiráð Íslands í LondonSendiherraStaðgenglar sendiherra
Sendiráð Íslands í MoskvuSendiherraStaðgenglar sendiherra
Sendiráð Íslands í Nýju DelíSendiherraStaðgenglar sendiherra
Sendiráð Íslands í OslóSendiherraStaðgenglar sendiherra
Sendiráð Íslands í OttawaSendiherraStaðgenglar sendiherra
Sendiráð Íslands í ParísSendiherraStaðgenglar sendiherra
Sendiráð Íslands í PekingSendiherraStaðgenglar sendiherra
Sendiráð Íslands í StokkhólmiSendiherraStaðgenglar sendiherra
Sendiráð Íslands í TókýóSendiherraStaðgenglar sendiherra
Sendiráð Íslands í VarsjáSendiherraStaðgenglar sendiherra
Sendiráð Íslands í VínSendiherraStaðgenglar sendiherra
Sendiráð Íslands í Washington D.C.SendiherraStaðgenglar sendiherra
Fulltrúar í stjórn og framkvæmdastjóri fyrirtækis í eigu íslenska ríkisins
Fulltrúar í stjórn og framkvæmdastjóri fyrirtækis í eigu íslenska ríkisins
KennitalaHeitiStarfsheitiStarfsheiti
5210002790Auðkenni ehf.StjórnarmennFramkvæmdastjóri
5112032950Farice ehf.StjórnarmennFramkvæmdastjóri
7110110990Icelandic Trademark HoldingStjórnarmennFramkvæmdastjóri
5502100370Isavia ohf.StjórnarmennForstjóri
7012966139
Íslandspóstur ohf.StjórnarmennForstjóri
5005070550Keilir Miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífsStjórnarmennFramkvæmdastjóri
4710080280Landsbankinn hf.BankaráðsmennBankastjóri
4402022920Landskerfi bókasafna hf.StjórnarmennFramkvæmdastjóri
5808042410Landsnet hf.StjórnarmennForstjóri
4202691299LandsvirkjunStjórnarmennForstjóri
6709060190Matís ohf.StjórnarmennForstjóri
6608770299Orkubú Vestfjarða ohf.StjórnarmennOrkubússtjóri
5202692669Rarik ohf.StjórnarmennForstjóri
5802141180Vigdísarholt ehf.StjórnarmennFramkvæmdastjóri
Íslenskir fyrirsvarsmenn alþjóðasamtaka og alþjóðastofnana
Íslenskir fyrirsvarsmenn alþjóðasamtaka og alþjóðastofnana
NafnStarfsheitiStarfsheitiStarfsheiti
Fríverslunarsamtök Evrópu (European Free Trade Association, EFTA)FramkvæmdastjóriAðstoðarframkvæmdastjóriStjórnarmenn
Eftirlitsstofnun EFTA (EFTA Surveillance Authority, ESA)FramkvæmdastjóriAðstoðarframkvæmdastjóriStjórnarmenn
Uppbyggingarsjóður EES (EEA Grants)FramkvæmdastjóriAðstoðarframkvæmdastjóriStjórnarmenn