Fara beint í Meginmál

Tilgangur með Menningarstyrknum sem tengdur er nafni Jóhannesar Nordals er að styðja viðleitni einstaklinga og hópa sem miðar að því að varðveita menningarverðmæti sem núverandi kynslóðir hafa fengið í arf. Í úthlutunarnefndinni eru Jón Þ. Sigurgeirsson, fulltrúi menningar- og viðskiptaráðherra, Guðrún Nordal, forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Erna Kaaber, tilnefnd af bankaráði.
Jóhannes Nordal var seðlabankastjóri frá stofnun Seðlabanka Íslands árið 1961 og gegndi því embætti til 1993. Hann var formaður þriggja manna bankastjórnar frá 1964 til 1993. Jóhannes var fæddur árið 1924 og lést í mars 2023.

Í tengslum við 50 ára afmæli Seðlabanka Íslands árið 2011 var settur á laggirnar Menningarstyrkur tengdur nafni Jóhannesar Nordals. Tilgangur með úthlutun styrksins var og er „að styðja verkefni einstaklinga og hópa sem miða að því að varðveita menningarverðmæti sem núverandi kynslóð hefur tekið í arf.“

Styrksupphæðin var upphaflega 1,5 milljón en er í dag 5 milljónir.

2025 

  • Minjasafn Austurlands - Undir berum himni – 1,5 miljónir króna
  • Hið íslenska bókmenntafélag og Eggert Pálsson - Þorlákstíðir - 1,3 milljónir króna
  • Linn Janssen - Fram í dagsljósið, konur í gamla daga - 1,2 milljónir króna
  • Erla Dóris Halldórsdóttir -  Berklar á Íslandi - 500 þúsund krónur
  • Jón Kristinn Einarsson - Hlaðvarp um Íslandssöguna - 500 þúsund krónur  

2024 

  • Guðmundur Jónsson – Bændasamfélagið á Íslandi. Félagsgerð og lifnaðarhættir í upphafi 18. aldar – 1,5 milljónir króna
  • Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir – Geisladiskur, norræn verk fyrir selló og píanó – 1 milljón króna
  • Þórbergssetur á Hala – Gísli Sverrir Árnason - Fátækt fólk í frelsisleit – 1 milljón króna  
  • Katrín Fjeldsted og Lovísa Fjeldsted – Arfleið Jórunnar Viðar, tölvusetning nótna – 1 milljón króna
  • Þorsteinn Dagur Rafnsson – Þústlar – 500 þúsund krónur 

2023  

  • Björn Þrándur Björnsson - Ásgerður Búadóttir - Catalogue raisonné – Ásgerðarsafn.is  - 1,5 milljónir króna
  • Sviðslistahópurinn Hnoðri – Skoffín og skringilmenni – 1,5 milljónir króna
  • Hjalti Snær Ægisson – Bessastaðaþýðingarnar – 1 milljón króna
  • Andri Kjartan Andersen – Íslenskar sögur – 500 þúsund krónur
  • Hákarlar við Íslands – Hákarlar í skólastofunni – 500 þúsund krónur 

2022  

  • Bragi Halldórsson – Sálmabækur 16. aldar – 1 milljón króna
  • Sigurþór Sigurðsson – Saga bókbands á Íslandi – 1 milljón króna
  • Pamela De Sensi/Töfrahurð tónlistarútgáfa  - Dimmalimm tónlistarævintýri – 1 milljón króna
  • Dream Voices menningar- og fræðslufélag - Skáldið og biskupsdóttirin – 1 milljón króna 

2021  

  • Skáldaskinna ehf. – Skáld.is, Soffía Auður Birgisdóttir– 1,6 milljónir króna
  • Ásta Soffía Þorgeirsdóttir – Blómaskeið íslenska tangósins á 20. öldinni – 1,4 milljónir króna
  • Prentsögusetur, Haukur Már Haraldsson – Þróun bókagerðar á Íslandi 1535-1877 – 1 milljón króna 

2020  

  • Fræðafélag um forystufé á Svalbarði í Þistilfirði, Daníel Hansen – Forystufé – 1,5 milljónir króna
  • Krumma films ehf., Hrafnhildur Gunnarsdóttir – Svona fólk – 1,5 milljónir króna
  • Sölvi Björn Sigurðsson – Ævisaga Magnúsar Ásgeirssonar – 1 milljón króna 

2019  

  • Bryndís Björgvinsdóttir og Birna Geirfinnsdóttir – Bók um Kristínu Þorkelsdóttur – 2 milljónir króna
  • Pálína Jónsdóttir – Leikgerð á leikverki Jóhanns Sigurjónssonar  - Galdra-Lofti – 1 milljón króna 

2018 

  • Gebo Kano ehf. Guðný Þorsteinsdóttir, Friðrik Magnússon og Emil Hjörvar Petersen – Hulduheimur: Leikjabók um íslenskan þjóðararf fyrir spjaldtölvur – 1,5 milljón króna
  • Árni Heimir Ingólfsson – Íslensk nótnahandrit frá 1100-1800 – 1 milljón króna
  • Pamela De Sensi/Tónlistarsafn Íslands – Ferðast um fullveldið, sögur af fullvalda börnum – 500 þúsund krónur 

2017 

  • Ugla Huld Hauksdóttir – Þjóðsögur Jóns Árnasonar, sjónvarpsþáttaröð – 1,5 milljónir króna
  • Þórhallur Arnórsson og Jón Páll Halldórsson – Vargöld  - önnur bók – 750 þúsund krónur
  • Hallfríður Ólafsdóttir – Maxímús Músíkús fer á fjöll - um íslenska náttúru, tónlistina og menningararfinn – 750 þúsund krónur 

2016 

  • Gunnsteinn Ólafsson og Hallgrímur Helgason – Höfuðlausn, ópera í fjórum þáttum – 1,5 milljónir króna
  • Brynhildur Björnsdóttir og Kristín Eva Þórhallsdóttir – Ferðafélaginn – 800 þúsund krónur
  • Einar Falur Ingólfsson – EF & JL – 700 þúsund krónur 

2015

  • Rannveig Anna Jónsdóttir – Varðveisla og öflun á upplýsingum um skrif kvenna í íslenskri menningarsögu – 1 milljón króna
  • Níels Hafstein – Sýnisbók safneignar – 1 milljón króna 

2014 

  • Árni Kristjánsson – Völvur-leikhandrit – 1 milljón króna
  • Helga Rut Guðmundsdóttir – Vísnagull, vísur og þulur fyrir börn í fangi – 1 milljón króna 

2013 

  • Bjarki Þór Jónsson – Upphaf, þróun og varðveisla íslenskra tölvuleikja – 1 milljón króna
  • Margrét Gunnarsdóttir – Þjóðbúningur verður til, klæðaburður Íslendinga í aldanna rás – 1 milljón króna 

2012 

  • Sigríður Dóra Sverrisdóttir – Rímur og rokk – 900 þúsund krónur
  • Páll Valsson – Ævisaga Bjarna Thorarensen – 600 þúsund krónur 

 

Reglur um úthlutun styrksins(74,34 KB)