Millibankamarkaður með gjaldeyri
Gengi íslensku krónunnar er ákvarðað á millibankamarkaði með gjaldeyri. Markaðurinn er opinn milli klukkan 9:15 og 16:00 hvern viðskiptadag. Rétt til þátttöku á millibankamarkaðnum hafa þrjú fjármálafyrirtæki og gegna þau hlutverki viðskiptavaka en auk þeirra er Seðlabanki Íslands einnig þátttakandi. Um markaðinn gilda reglur nr. 600/2020 sem Seðlabanki Íslands setur.
Viðskiptavakar skuldbinda sig til að setja fram bindandi kaup- og sölutilboð í evru gagnvart íslenskri krónu. Tilboðin eru birt í upplýsingakerfi Bloomberg. Seðlabankinn heldur utan um veltu á markaðnum og birtir í Gagnabanka Seðlabankans.
Hægt er að kynna sér innlendan gjaldeyrismarkað nánar í grein í Kalkofninum.
Almennt um millibankamarkað með gjaldeyri
- Markaðurinn er opinn virka daga klukkan 9:15-16:00.
- Eftirtalin fjármálafyrirtæki eru viðskiptavakar á markaðnum:
- Arion banki hf.
- Íslandsbanki hf.
- Landsbankinn hf.
- Viðskiptagjaldmiðill er evra.
- Tilboð viðskiptavakanna eru ein milljón evra í hvert sinn.
- Viðskiptavakar skuldbinda sig til þess að uppfæra reglulega leiðbeinandi verðtilboð, eigi síðar en á 30 sekúndna fresti.
Hlutverk Seðlabanka Íslands á millibankamarkaði með gjaldeyri:
- Er aðili að markaðnum.
- Er ekki viðskiptavaki og þarf því ekki að halda úti virkum kaup- og sölutilboðum.
- Getur átt viðskipti við viðskiptavaka hvenær sem er á meðan markaðurinn er opinn.
- Sinnir eftirlitshlutverki.
Skráning á gengi íslensku krónunnar
Millibankamarkaður með krónur
Millibankamarkaður með krónur er markaður fyrir ótryggð skammtíma inn- og útlán á milli lánastofnana. Hann starfar á grundvelli reglna um viðskipti á millibankamarkaði með krónur nr. 1196/2019, sem Seðlabankinn setti í samstarfi við markaðsaðila.
Hlutverk Seðlabankans er eingöngu að skipuleggja markaðinn og starfrækja. Seðlabankinn er ekki aðili að markaðnum, þar sem bankanum er ekki heimilt að veita lán án trygginga. Krónumarkaður gengur einnig undir nafninu REIBOR markaður og vextir á markaðnum eru kallaðir REIBOR vextir. REIBOR er stytting á Reykjavík interbank offered rate.
Almennt um millibankamarkað með krónur
- Markaðurinn er opinn klukkan 9:15-16:00.
- Eftirtalin fjármálafyrirtæki eru aðilar á markaðinum:
- Arion banki hf.
- Íslandsbanki hf.
- Landsbankinn hf.
- Kvika banki hf.
- Markaðsaðilar semja um lánalínur sín á milli.
- Markaðsaðilum er skylt að gefa upp bindandi inn- og útlánstilboð í eftirfarandi tímalengdir, yfir nótt (ON), vika (SW), einn mánuður (1M), þrír mánuðir (3M) og sex mánuðir (6M).
- Markaðsaðilar skuldbinda sig til að uppfæra reglulega skuldbindandi vaxtatilboð á inn- og útlánum á millibankamarkaði, þó eigi sjaldnar en á 10 mínútna fresti.
- Hámark vaxtabil milli inn- og útlána í tilboðum markaðsaðila til eins mánaðar eða lengri tíma er 100 punktar. Ekki er skilgreint hámarksvaxtabil í tilboðum með styttri tímalengdum.
Hlutverk Seðlabanka Íslands á millibankamarkaði með krónur:
- Er ekki aðili að markaðnum.
- Sinnir eftirlitshlutverki og heldur utan um viðskipti á markaðnum.
- Skráir daglega vexti á millibankamarkaðnum með krónur fyrir tímalengdir frá yfir nótt að 6 mánuðum. Skráningin fer fram klukkan 11:15 og er birt á heimasíðu Seðlabankans skömmu síðar.
Nánari upplýsingar um veltu á millibankamarkaði með krónur má finna í Gagnabanka Seðlabankans.
Vaxtaviðmið í íslenskum krónum (IKON)
Aðilar að gagnaskilum fyrir IKON vaxtaviðmið eru viðskiptabankarnir. Um vaxtaviðmið í íslenskum krónum gilda reglur nr. 370/2022 um vaxtaviðmið á ótryggðum innlánum í íslenskum krónum.
Í lok hvers ársfjórðungs birtir Seðlabankinn yfirlit yfir villur og frávik í skýrsluskilum, hvort sem þær hafi leitt til breytinga á birtum viðmiðunarvöxtum eða ekki.