Seðlabanki Íslands birtir sértækar upplýsingar um vátryggingastarfsemi, í samræmi við lög og tilskipun ESB, hvað varðar lög, stjórnvaldsfyrirmæli og almennar leiðbeiningar, eftirlitsferlið, tölfræðileg gögn og fleira.
Upplýsingar eru birtar skv. 30. gr. laga nr. 100/2016 um vátryggingastarfsemi, sbr. reglugerð nr. 55/2022 um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um vátryggingastarfsemi og vátryggingasamstæður, sem innleiðir reglugerð (ESB) 2015/2451, um tæknilega framkvæmdarstaðla að því er varðar sniðmát og fyrirkomulag við birtingu eftirlitsyfirvalda á sértækum upplýsingum í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/138/EB. Sniðmátin eru þróuð af Evrópsku vátrygginga- og lífeyrissjóðaeftirlitsstofnuninni (EIOPA) og birt í reglugerð framkvæmdastjórnar ESB.
Eitt af markmiðunum með birtingu upplýsinganna er að auðvelda samanburð á framkvæmd eftirlits milli eftirlitsstofnana innan Evrópska efnahagssvæðisins.
Upplýsingar sem Seðlabankinn birtir í samræmi við 2. mgr. 31. gr. tilskipunar 2009/138/EB má sjá hér að neðan.