Fara beint í Meginmál

Seðlabanki Íslands leggur áherslu á metnaðarfullt starfsumhverfi með það að markmiði að byggja upp trausta liðsheild. Með áherslu á virðingu og vellíðan, jafnrétti, þekkingu, fagmennsku og framsækni nær bankinn markmiðum sínum með árangursríkum hætti.

Sérfræðingur í viðskiptaumsjón

Seðlabanki Íslands óskar eftir að ráða sérfræðing með reynslu af fjármálamarkaði, í deild bakvinnslu á sviði markaðsviðskipta.

Nánar

Reykjavík - Fullt starf

Seðlabanki Íslands óskar eftir að ráða sérfræðing með reynslu af fjármálamarkaði, í deild bakvinnslu á sviði markaðsviðskipta.

Svið markaðsviðskipta hefur umsjón með innlendum peninga- og gjaldeyrismarkaði, annast viðskipti bankans við innlendar og erlendar fjármálastofnanir, sér um stýringu á efnahagsreikningi bankans, vörslu og ávöxtun gjaldeyrisforða, umsjón með lánamálum ríkissjóðs, auk heildstæðs eftirlits með fjárhagsáhættu á efnahagsreikningi Seðlabankans.

Bakvinnslan er ein af fjórum deildum á sviðinu og sinnir m.a. frágangi viðskipta vegna lánamála ríkisins, gjaldeyrisviðskipta og markaðsaðgerða Seðlabankans.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Innlent og erlent verðbréfauppgjör
  • Verðbréfavarsla
  • Greiðslumiðlun í krónum og erlendum myntum
  • Vöktun á kortauppgjörskerfi
  • Bankaþjónusta fyrir ríki og ríkisstofnanir

Menntunar og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. í viðskiptafræði
  • Viðeigandi reynsla af fjármálamarkaði
  • Þekking á innlendum og erlendum greiðslu- og uppgjörskerfum er kostur
  • Þekking á Swift greiðslu- og verðbréfaskeytum er kostur
  • Færni í mannlegum samskiptum og árangursríkri teymisvinnu
  • Nákvæmni, frumkvæði, drifkraftur og metnaður til að ná árangri í starfi
  • Góð færni í að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku

Frekari upplýsingar veita Salóme R. Birgisdóttir forstöðumaður bakvinnslu (salome.r.birgisdottir@sedlabanki.is) og Erla Traustadóttir mannauðsráðgjafi (mannaudur@ sedlabanki.is). Umsóknarfrestur er til og með 6. maí nk.

Um er að ræða 100% starfshlutfall með starfsstöð í Reykjavík. Með umsókn þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu rökstudd.

Við ráðningar í störf hjá Seðlabanka Íslands er tekið mið af jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun bankans og er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um. Laun greiðast samkvæmt kjarasamningi samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Umsóknir gilda í sex mánuði og öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Vakin er athygli umsækjenda á því að um ráðningarferlið gilda m.a. stjórnsýslulög nr. 37/1993, upplýsingalög nr. 140/2012 og lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.

Seðlabanki Íslands er sjálfstæð stofnun í eigu ríkisins sem heyrir undir forsætisráðherra. Markmið bankans er að stuðla að stöðugu verðlagi, fjármálastöðugleika og traustri og öruggri fjármálastarfsemi. Þá skal bankinn sinna viðfangsefnum sem samrýmast hlutverki hans sem seðlabanka, svo sem að varðveita gjaldeyrisforða og stuðla að virku og öruggu fjármálakerfi. Hjá Seðlabankanum starfar öflug liðsheild og leggur bankinn ríka áherslu á metnaðarfullt og hvetjandi starfsumhverfi sem einkennist af fagmennsku, heilindum, auðmýkt og áræðni.

Sérfræðingur í yfirsýn fjármálainnviða

Seðlabanki Íslands óskar eftir að ráða öflugan sérfræðing með þekkingu á fjármálainnviðum í deild rekstrarlegra áhættuþátta á sviði varúðareftirlits.

Nánar

Reykjavík - Fullt starf

Seðlabanki Íslands óskar eftir að ráða öflugan sérfræðing með þekkingu á fjármálainnviðum í deild rekstrarlegra áhættuþátta á sviði varúðareftirlits. Leitað er að einstaklingi til að taka þátt í að móta eftirlit og yfirsýn með kerfislega mikilvægum fjármálainnviðum íslenska fjármálamarkaðarins, sem skiptast í grunninnviði og kjarnainnviði. 

Seðlabankinn fylgist með öryggi, skilvirkni og hagkvæmni fjármálainnviða og gerir tillögur að úrbótum þegar þess gerist þörf. Yfirsýn er höfð með kerfislega mikilvægum fjármálainnviðum (til að mynda millibankagreiðslukerfi Seðlabanka Íslands). Yfirsýn Seðlabankans felur í sér reglulegt eftirlit með virkni og rekstraröryggi kerfislega mikilvægra innviða.

Í deild rekstrarlegra áhættuþátta starfar öflugur hópur sérfræðinga að verkefnum sem m.a. snúa að mati á rekstraráhættu, upplýsingatækniáhættu, og stjórnarháttum. Svið varúðareftirlits hefur eftirlit með starfsemi fjármálafyrirtækja, vátryggingafélaga, lífeyrissjóða og annarra fyrirtækja á fjármálamarkaði. Auk þess hefur sviðið yfirsýn og reglulegt eftirlit með virkni og rekstraröryggi kerfislega mikilvægra fjármálainnviða.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Reglulegt eftirlit með virkni og rekstraröryggi kerfislega mikilvægra innviða, þ.m.t. á grundvelli áhættumats
  • Yfirsýn yfir þróun áhættu tengd fjármálainnviðum
  • Þróa aðferðafræði yfirsýnar bankans með kerfislega mikilvægum innviðum
  • Rita matsskýrslur í kjölfar úttekta

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Þekking á greiðslumiðlun og greiðsluþjónustu
  • Þekking eða reynsla af störfum í eftirliti og/eða innri endurskoðun er kostur
  • Tæknileg þekking á virkni greiðslumiðlunar á íslenska fjármálamarkaðnum og/eða á evrópska markaðnum, t.d. SWIFT, Millibankakerfi og Target (TIPS, T2) er kostur
  • Góð færni í mannlegum samskiptum og árangursríkri teymisvinnu
  • Frumkvæði, heiðarleiki, sjálfstæð vinnubrögð og metnaður til að ná árangri í starfi
  • Hæfni til að tjá sig og miðla upplýsingum í ræðu og riti á íslensku og ensku

Frekari upplýsingar veita Kristín Logadóttir, forstöðumaður rekstrarlegra áhættuþátta, (kristin.logadottir@sedlabanki.is) og Hólmfríður Þorvaldsdóttir, mannauðsráðgjafi á sviði mannauðs og menningar, (mannaudur@sedlabanki.is). Umsóknarfrestur er til og með 27. apríl nk.

Um er að ræða 100% starfshlutfall með starfsstöð í Reykjavík. Sótt er um starfið á heimasíðu Seðlabanka Íslands, www.sedlabanki.is/storf. Með umsókn þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu rökstudd.

Við ráðningar í störf hjá Seðlabanka Íslands er tekið mið af jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun bankans og er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um. Laun greiðast samkvæmt kjarasamningi samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Umsóknir gilda í sex mánuði og öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Vakin er athygli umsækjenda á því að um ráðningarferlið gilda m.a. stjórnsýslulög nr. 37/1993, upplýsingalög nr. 140/2012 og lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.

Seðlabanki Íslands er sjálfstæð stofnun í eigu ríkisins sem heyrir undir forsætisráðherra. Markmið bankans er að stuðla að stöðugu verðlagi, fjármálastöðugleika og traustri og öruggri fjármálastarfsemi. Þá skal bankinn sinna viðfangsefnum sem samrýmast hlutverki hans sem seðlabanka, svo sem að varðveita gjaldeyrisforða og stuðla að virku og öruggu fjármálakerfi. Hjá Seðlabankanum starfar öflug liðsheild og leggur bankinn ríka áherslu á metnaðarfullt og hvetjandi starfsumhverfi sem einkennist af fagmennsku, heilindum, auðmýkt og áræðni.

Sérfræðistörf

Við sérstakar aðstæður getur komið til þess að fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands þurfi að semja við sérfræðinga til að sinna tilteknum verkefnum eins og að athuga tiltekna þætti í starfsemi eða rekstri eftirlitsskylds aðila eða til að hafa að öðru leyti sértækt eftirlit með eftirlitsskyldum aðila.

Nánar

Reykjavík - Hlutastarf

Við sérstakar aðstæður getur komið til þess að fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands þurfi að semja við sérfræðinga til að sinna tilteknum verkefnum. Þá hefur fjármálaeftirlitið sérstaka heimild til að skipa sérfræðing til að athuga tiltekna þætti í starfsemi eða rekstri eftirlitsskylds aðila eða til að hafa að öðru leyti sértækt eftirlit með eftirlitsskyldum aðila, sbr. 2. mgr. 9. gr. laga nr. 87/1998, um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi. Jafnframt hefur fjármálaeftirlitið meðal annars heimild til að skipa við sérstakar aðstæður fjármálafyrirtæki bráðabirgðastjórnanda, sbr. 107. gr. e laga nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki, og vátryggingafélagi slitastjórn, sbr. 152. gr. laga nr. 100/2016, um vátryggingastarfsemi.

Fjármálaeftirlitið tekur við ferilskrám, og eftir atvikum kynningarbréfum, þeirra sem eru reiðubúnir að gefa kost á sér til slíkra starfa. Einnig geta fyrirtæki gefið kost á tilteknum starfsmönnum sínum til slíkra starfa. Leitað er að einstaklingum með fjölbreytta þekkingu og reynslu á sviði lögfræði, viðskiptafræði, hagfræði, verkfræði, fjármálamarkaða, reksturs, stjórnunar, upplýsingatækni, reikningsskila o.fl.

Ferilskrá, og eftir atvikum kynningarbréf, skulu gefa glögga mynd af menntun og reynslu hlutaðeigandi. Upplýsingarnar verða aðgengilegar viðeigandi stjórnendum innan fjármálaeftirlitsins ef til greina kemur að semja við sérfræðing til að sinna tilteknu verkefni. Þá skulu upplýsingar um heimilisfang, símanúmer og netfang fylgja ferilskránni. Jafnframt er mikilvægt að fram komi upplýsingar um tengsl hlutaðeigandi við einstaka eftirlitsskylda aðila. Vakin er athygli á því að almennt koma starfsmenn eftirlitsskyldra aðila ekki til greina til umræddra sérfræðistarfa.

Fyrirspurnir má senda á netfangið sedlabanki@sedlabanki.is.

Almenn umsókn

Hér getur þú sent inn almenna umsókn í tímabundin störf.

Nánar

Reykjavík - Hlutastarf

Takk fyrir að sýna því áhuga á að starfa með okkur í Seðlabanka Íslands.

Seðlabanka Íslands ber skylda til að auglýsa opinberlega laus störf samkvæmt 3. mgr. 7. gr. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, sbr. nánar reglur nr. 1000/2019 um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Starfsþjálfun

Hér getur þú sent inn umsókn um starfsþjálfun.

Nánar

Reykjavík - Fullt starf

Takk fyrir að sýna því áhuga að koma í starfsþjálfun hjá okkur í Seðlabanka Íslands.

Hér getur þú sótt um að koma til okkar í starfsþjálfun. Við förum reglulega yfir umsóknir og verðum í sambandi ef við höfum lausa starfsþjálfunarstöðu við þitt hæfi. Starfsþjálfun er einstakt tækifæri fyrir háskólanema til að öðlast hagnýta og starfstengda reynslu og er markmið okkar að bjóða reglulega upp á fjölbreytt tækifæri fyrir nemendur til að kynnast verkefnum og starfsemi bankans.

mannaudur@sedlabanki.is