Til að mega stunda fjármálastarfsemi er sett það skilyrði að fyrirtæki hafi verið veitt starfsleyfi sem fjármálafyrirtæki, þ.e. lánastofnun (viðskiptabanki, sparisjóður og lánafyrirtæki) og verðbréfafyrirtæki.
Um starfsleyfi fjármálafyrirtækja gildir II. kafli laga nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki og I. kafla 2. þáttar laga nr. 115/2021, um markaði fyrir fjármálagerninga. Sjá nánari umfjöllun um starfsleyfi verðbréfafyrirtækja.
Seðlabanki Íslands veitir fyrirtækjum starfsleyfi sem lánastofnun samkvæmt 2. gr. laga um fjármálafyrirtæki Í 3. gr. laga um fjármálafyrirtæki er kveðið á um hvaða starfsemi telst leyfisskyld samkvæmt lögunum. Kveðið er á um kröfur til stofnunar og starfsemi lánastofnana í III. kafla laganna, og IV. kafli laganna tiltekur starfsheimildir þeirra. Þar segir enn fremur að lánastofnunum sé einnig heimilt að stunda fjárfestingarþjónustu og fjárfestingarstarfsemi samkvæmt lögum um markaði fyrir fjármálagerninga.
Seðlabankinn vekur athygli á því að samkvæmt 1. tölul. 1. mgr. 110. gr. laga um fjármálafyrirtæki getur það lagt stjórnvaldssektir á hvern þann sem brýtur gegn ákvæðum 3. gr. um að starfsleyfisskyld starfsemi skuli ekki stunduð án starfsleyfis. Slíkt getur einnig varðað sektum eða fangelsi, sbr. 1. tölul. 1. mgr. 112. gr. b sömu laga.
Umsókn og afgreiðsla starfsleyfis lánastofnana
Í 5. gr. laga um fjármálafyrirtæki er kveðið á um að umsókn um starfsleyfi skuli vera skrifleg og að henni skuli fylgja tilteknar upplýsingar en ekki er um tæmandi talningu að ræða. Seðlabankinn hefur útbúið yfirlit yfir þær upplýsingar sem bankinn fer fram á að fylgi umsókn auk viðeigandi fylgigagna. Seðlabankinn leggur áherslu á að umsóknin sé skipulögð þannig að hún vísi til viðeigandi töluliða í umræddu yfirliti.
Að öðru leyti vísast til reglna nr. 771/2023, um upplýsingagjöf vegna umsóknar um starfsleyfi sem lánastofnun, og til hliðsjónar viðmiðunarreglna EBA/GL/2021/12 um veitingu starfsleyfis sem lánastofnun.
Nýtt starfsleyfi
Synjun starfsleyfis
Kostnaður vegna starfsleyfis lánastofnana
Hæfismat stjórnarmanna og framkvæmdastjóra lánastofnana
Nánari upplýsingar um verklag við hæfismat stjórnarmanna og framkvæmdastjóra má finna í vefritinu Fjármál.