Núverandi nefndarmeðlimir
Ásgeir Jónsson
Formaður fjármálaeftirlitsnefndar sem er hluti af starfi seðlabankastjóra.
Ásgeir útskrifaðist með BS-gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands árið 1997, MS-gráðu frá Indiana University árið 1997 og lauk doktorsprófi frá Indiana University árið 2001.
Ágeir starfaði um skeið sem hagfræðingur hjá verkalýðsfélaginu Dagsbrún og hjá Hagfræðistofnun Háskóla Íslands. Árið 2004 var hann ráðinn lektor við Hagfræðideild Háskóla Íslands og síðan dósent. Árið 2015 varð hann deildarforseti Hagfræðideildar Háskóla Íslands. Samhliða störfum sínum við Háskólann starfaði Ásgeir sem efnahagsráðgjafi hjá Virðingu og Gamma ásamt því að vera aðalhagfræðingur Kaupþings og síðan Arion banka á árunum 2004-2011.
Björk Sigurgísladóttir
Staðgengill formanns fjármálaeftirlitsnefndar frá maí 2023 þegar hún var skipuð varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits.
Björk er með meistaragráðu í alþjóðalögum og samanburðarlögfræði (LLM) frá University of Iowa frá árinu 2004 og meistaragráðu í viðskiptafræði (MBA) frá University of Northern Iowa frá árinu 2008. Hún lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 1998 og öðlaðist réttindi til málflutnings fyrir héraðsdómi árið 2000.
Björk hafði áður starfað í 15 ár við fjármálaeftirlit, fyrst hjá Fjármálaeftirlitinu en síðan hjá Seðlabanka Íslands. Hún tók við starfi forstöðumanns lagalegs eftirlits á eftirlitssviði Fjármálaeftirlitsins árið 2012. Árið 2018 tók hún við starfi framkvæmdastjóra lagalegs eftirlits og vettvangsathugana hjá Fjármálaeftirlitinu en fluttist til Seðlabankans við sameiningu bankans og Fjármálaeftirlitsins árið 2020, þar sem hún gegndi starfi framkvæmdastjóra háttsemiseftirlits.
Erna Hjaltested
Skipuð í fjármálaeftirlitsnefnd í febrúar 2024.
Héraðsdómslögmaður. Próf í lögfræði frá Háskóla Íslands. Meistarapróf (LL.M) í samanburðarlögfræði frá University of Miami School of Law. Erna var ráðin yfirlögfræðingur Isavia haustið 2023. Þar áður hafði hún starfað meðal annars sem lögmaður hjá embætti ríkislögmanns, lögfræðingur hjá fjármálaráðuneytinu og sem yfirlögfræðingur á skrifstofu EFTA í Brussel. Erna er jafnframt stundakennari í lögfræði við Háskólann í Reykjavík.
Gunnar Þór Pétursson
Skipaður í fjármálaeftirlitsnefnd í nóvember 2022.
Doktorspróf frá Háskólanum í Lundi í Svíþjóð Prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík. Framkvæmdastjóri innra markaðssviðs hjá Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) 2017-2020. Meistaragráða í lögfræði frá Háskóla Íslands. LL.M.-próf frá Lundarháskóla 1998. Deildarforseti lagadeildar Háskólans í Reykjavík frá apríl 2024. Gestaprófessor við lagadeild Parísarháskóla og lagadeild háskólans í Lille. Ad-Hoc dómari við EFTA-dómstólinn frá júlí 2022.
Ragnheiður Elfa Þorsteinsdóttir
Tómas Brynjólfsson
Tók sæti í fjármálaeftirlitsnefnd þegar hann var skipaður varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika í ágúst 2024.
Tómas lauk meistaragráðu í alþjóðastjórnmálum frá London School of Economics árið 2004 og meistaragráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands árið 2003. Þá lauk hann BA-gráðu í alþjóðastjórnmálafræði, sögu og hagfræði við University of Georgia árið 2002.
Tómas var skrifstofustjóri á skrifstofu efnahagsmála í fjármála- og efnahagsráðuneytinu frá árinu 2018 og var settur ráðuneytisstjóri frá janúar til apríl 2024. Á árunum 2015-2018 var hann framkvæmdastjóri á skrifstofu þjónustuviðskipta hjá EFTA-skrifstofunni í Brussel og frá 2013-2015 skrifstofustjóri á skrifstofu efnahagsmála og fjármálamarkaða í fjármála- og efnahagsráðuneytinu.
Tómas var varaformaður stjórnar Fjármálaeftirlitsins á árinu 2015 og stjórnarformaður hjá Söfnunarsjóði lífeyrisréttinda á árunum 2021-2023.