Fjármálaeftirlitsnefnd

Seðlabankinn fer með þau verkefni sem fjármálaeftirlitinu eru falin í lögum og stjórnvaldsfyrirmælum og er fjármálaeftirlitið hluti af Seðlabankanum. Skal bankinn fylgjast með að starfsemi eftirlitsskyldra aðila sé í samræmi við lög og stjórnvaldsfyrirmæli og að hún sé að öðru leyti í samræmi við heilbrigða og eðlilega viðskiptahætti, sbr. lög um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi, sbr. 4. mgr. 2. gr. laga nr. 92/2019 um Seðlabanka Íslands.

Ákvarðanir sem faldar eru fjármálaeftirlitinu í lögum eða stjórnvaldsfyrirmælum eru teknar af Seðlabanka Íslands eða fjármálaeftirlitsnefnd, skv. 2. mgr. 3. gr. laga nr. 92/2019.

Í fjármálaeftirlitsnefnd sitja seðlabankastjóri, varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika og þrír sérfræðingar í málefnum fjármálamarkaðar sem ráðherra, sem fer með málefni fjármálamarkaðar, skipar til þriggja til fimm ára í senn. Seðlabankastjóri er formaður nefndarinnar og er varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits staðgengill hans. Samsetning fjármálaeftirlitsnefndar skal vera þannig að nefndin búi sameiginlega yfir fullnægjandi þekkingu, hæfni og reynslu til að vinna þau verkefni sem henni eru falin. Sami einstaklingur getur setið í fjármála­eftirlits­nefnd í að hámarki tíu ár. Ráðherra getur aðeins skipað sama mann í fjármálaeftirlitsnefnd tvisvar sinnum.

Fjármálaeftirlitsnefnd er nú skipuð þannig: Ásgeir Jónsson formaður, Björk Sigurgísladóttir, staðgengill formanns, Gunnar Jakobsson, Ásta Þórarinsdóttir, Erna Hjaltested og Gunnar Þór Pétursson. 

Stefnumótun

Fjármálaeftirlitsnefnd setur stefnu um beitingu stjórnsýsluviðurlaga og þvingunarúrræða og skal veita umsögn um stefnumarkandi áherslur í fjármálaeftirliti. Varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits undirbýr tillögu að stefnumörkun við framkvæmd fjármálaeftirlits og hefur umsjón með innleiðingu hennar að lokinni umfjöllun í nefndinni.

Stefna í fjármálaeftirliti tekur til þeirrar starfsemi sem fjármálaeftirlitinu er falin í lögum og lýsir megináherslum, nálgun og aðferðafræði Seðlabanka Íslands við eftirlit með fjármálamarkaðnum.

 

 

Fundir fjármálaeftirlitsnefndar

Fjármálaeftirlitsnefnd skal halda fundi eins oft og þörf er á, að jafnaði ekki sjaldnar en sex sinnum á ári. Auk þess getur fjármálaeftirlitsnefnd haldið fund ef formaður ákveður eða þrír nefndarmenn krefjast þess. Fjármálaeftirlitsnefnd setur sér starfsreglur, m.a. um undirbúning, rökstuðning og birtingu ákvarðana sinna. Fjármálaeftirlitsnefnd skal halda fundargerðir. Fjármálaeftirlitsnefnd er heimilt að birta opinberlega ákvarðanir sínar. Þó skal ekki birta ákvörðun verði hún talin stefna hagsmunum fjármálamarkaðarins í hættu, varði hún ekki hagsmuni markaðarins sem slíks eða ef ætla má að birting hennar valdi hlutaðeigandi aðilum tjóni sem telst ekki í samræmi við tilefni ákvörðunarinnar.

Fjármálaeftirlitsnefnd skal skila Alþingi skýrslu um störf sín einu sinni á ári. Skýrsluna skal ræða í þeirri þingnefnd sem þingforseti ákveður.

 

 

 

Til baka





Þetta vefsvæði byggir á Eplica