Núverandi nefndarmeðlimir
Ásgeir Jónsson
Formaður fjármálastöðugleikanefndar frá upphafi árs 2020, en það er hluti af starfi seðlabankastjóra.
Ásgeir útskrifaðist með BS-gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands árið 1997, MS-gráðu frá Indiana University árið 1997 og lauk doktorsprófi frá Indiana University árið 2001.
Ágeir starfaði um skeið sem hagfræðingur hjá verkalýðsfélaginu Dagsbrún og hjá Hagfræðistofnun Háskóla Íslands. Árið 2004 var hann ráðinn lektor við Hagfræðideild Háskóla Íslands og síðan dósent. Árið 2015 varð hann deildarforseti Hagfræðideildar Háskóla Íslands. Samhliða störfum sínum við Háskólann starfaði Ásgeir sem efnahagsráðgjafi hjá Virðingu og Gamma ásamt því að vera aðalhagfræðingur Kaupþings og síðan Arion banka á árunum 2004-2011.
Ásgeir var formaður starfshóps um endurskoðun peningastefnu og höfundur skýrslu sem fjallaði um tillögur um umbætur á fjármálamarkaði.
Tómas Brynjólfsson
Staðgengill formanns fjármálastöðugleikanefndar frá ágúst 2024 er hann var skipaður varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika.
Tómas lauk meistaragráðu í alþjóðastjórnmálum frá London School of Economics árið 2004 og meistaragráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands árið 2003. Þá lauk hann BA-gráðu í alþjóðastjórnmálafræði, sögu og hagfræði við University of Georgia árið 2002.
Tómas var skrifstofustjóri á skrifstofu efnahagsmála í fjármála- og efnahagsráðuneytinu frá árinu 2018 og var settur ráðuneytisstjóri frá janúar til apríl 2024. Á árunum 2015-2018 var hann framkvæmdastjóri á skrifstofu þjónustuviðskipta hjá EFTA-skrifstofunni í Brussel og frá 2013-2015 skrifstofustjóri á skrifstofu efnahagsmála og fjármálamarkaða í fjármála- og efnahagsráðuneytinu.
Tómas var varaformaður stjórnar Fjármálaeftirlitsins á árinu 2015 og stjórnarformaður hjá Söfnunarsjóði lífeyrisréttinda á árunum 2021-2023.
Arnaldur Sölvi Kristjánsson
Skipaður í fjármálastöðugleikanefnd í mars 2025.
Arnaldur Sölvi er lektor við hagfræðideild Háskóla Íslands. Hann er með meistaragráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands og frá Toulouse School of Economics og doktorsgráðu í hagfræði frá háskólanum í Osló. Hann starfaði áður m.a. hjá Alþýðusambandi Íslands, norsku hagstofunni og á efnahagsskrifstofu í fjármálaráðuneyti Noregs í deild sem fylgdist m.a. með fjármálastöðugleika.
Axel Hall
Skipaður í fjármálastöðugleikanefnd í mars 2020.
Axel Hall er lektor við Viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík. Axel er með doktorspróf frá Háskóla Íslands 2015. Hann lauk B.Sc.-gráðu í hagfræði við Háskóla Íslands árið 1994. Hann lauk meistaragráðu í stærðfræðilegri hagfræði og hagrannsóknum við London School of Economics árið 1995. Hann var sérfræðingur við Hagfræðistofnun Háskóla Íslands á árunum 1996-2006 og var stundakennari við Viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands á sama tíma. Árið 2006 hóf Axel störf við Háskólann í Reykjavík.
Björk Sigurgísladóttir
Tók sæti í fjármálastöðugleikanefnd frá maí 2023, er hún var skipuð varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits.
Björk er með meistaragráðu í alþjóðalögum og samanburðarlögfræði (LLM) frá University of Iowa frá árinu 2004 og meistaragráðu í viðskiptafræði (MBA) frá University of Northern Iowa frá árinu 2008. Hún lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 1998 og öðlaðist réttindi til málflutnings fyrir héraðsdómi árið 2000.
Björk hafði áður starfað í 15 ár við fjármálaeftirlit, fyrst hjá Fjármálaeftirlitinu en síðan hjá Seðlabanka Íslands. Hún tók við starfi forstöðumanns lagalegs eftirlits á eftirlitssviði Fjármálaeftirlitsins árið 2012. Árið 2018 tók hún við starfi framkvæmdastjóra lagalegs eftirlits og vettvangsathugana hjá Fjármálaeftirlitinu en fluttist til Seðlabankans við sameiningu bankans og Fjármálaeftirlitsins árið 2020, þar sem hún gegndi starfi framkvæmdastjóra háttsemiseftirlits.
Bryndís Ásbjarnardóttir
Skipuð í fjármálastöðugleikanefnd í mars 2020.
Bryndís er aðjúnkt við viðskiptafræðideild Háskólans á Bifröst og fagstjóri yfir grunnnámi viðskiptafræðideildar. Hún lauk meistaragráðu í fjármálahagfræði frá Háskóla Íslands árið 2007 og BS-gráðu í hagfræði frá sama háskóla árið 2005.
Bryndís hóf störf í Seðlabanka Íslands árið 2005 og starfaði þar í um áratug, en tók við starfi forstöðumanns þjóðhagsvarúðar hjá Fjármálaeftirlitinu árið 2015. Áður starfaði hún um skeið sem hagfræðingur hjá Rannsóknarnefnd Alþingis um Íbúðalánasjóð og hjá Landssamtökum lífeyrissjóða. Á árunum 2020-2022 var Bryndís fagstjóri í spádeild Hagstofunnar og frá 2022-2024 var hún forstöðumaður grunnnáms í viðskipta- og hagfræðideild Háskólans í Reykjavík.
Þórarinn G. Pétursson
Tók sæti í fjármálastöðugleikanefnd í janúar 2025 er hann var skipaður varaseðlabankastjóri peningastefnu.
Þórarinn er með Cand. Oecon-próf í hagfræði frá Háskóla Íslands, meistarapróf í hagfræði frá háskólanum í Essex í Bretlandi og doktorspróf í hagfræði frá háskólanum í Árósum í Danmörku.
Þórarinn hóf störf í Seðlabanka Íslands árið 1994. Hann var aðalhagfræðingur og framkvæmdastjóri hagfræði- og peningastefnusviðs frá árinu 2009 og sat í peningastefnunefnd bankans á árunum 2009-2019. Áður starfaði hann m.a. sem forstöðumaður rannsóknar- og spádeildar hagfræðisviðs og sem deildarstjóri hagrannsókna.