Fara beint í Meginmál

Seðlabanki Íslands skal fylgjast með að starfsemi eftirlitsskyldra aðila sé í samræmi við lög, reglugerðir og reglur eða samþykktir sem um starfsemina gilda og að starfsemin sé að öðru leyti í samræmi við heilbrigða og eðlilega viðskiptahætti.

Seðlabankinn hefur eftirlit með starfsemi fjármálafyrirtækja, vátryggingafélaga, lífeyrissjóða og annarra fyrirtækja á fjármálamarkaði, sbr. 2. gr. laga nr. 87/1998, um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi.

Eftirlitsskyld starfsemi

Flokkar eftirlitsskyldra aðila
StarfsemiLög
ViðskiptabankarLög nr. 161/2002
SparisjóðirLög nr. 161/2002
Lánafyrirtæki (fjárfestingarbankar)Lög nr. 161/2002
VerðbréfafyrirtækiLög nr. 161/2002Lög nr. 115/2021
Rekstrarfélög verðbréfasjóðaLög nr. 116/2021
Rekstraraðilar sérhæfðra sjóðaLög nr. 45/2020
VerðbréfasjóðirLög nr. 116/2021
Sérhæfðir sjóðirLög nr. 45/2020
PeningamarkaðssjóðirLög nr. 6/2023
Evrópskir áhættufjármagnssjóðir og evrópskir félagslegir framtakssjóðirLög nr. 31/2022
Evrópskir langtímafjárfestingarsjóðirLög nr. 115/2022
Útgefendur sértryggðra skuldabréfaLög nr. 11/2008
Aðilar að verðbréfunLög nr. 71/2025
Stjórnendur fjárhagslegra viðmiðanaLög nr. 7/2021
LánshæfismatsfyrirtækiLög nr. 50/2017
Tryggingarsjóður vegna fjármálafyrirtækjaLög nr. 98/1999
VátryggingafélögLög nr. 100/2016
Eignarhaldsfélög, vátryggingasamstæður og fjármálasamsteypurLög nr. 161/2002Lög nr. 60/2017 Lög nr. 61/2017
Vátryggingamiðlarar og aðrir dreifingaraðilarLög nr. 62/2019
Kauphallir og skipulegir markaðirLög nr. 115/2021
VerðbréfamiðstöðvarLög nr. 7/2020
Lífeyrissjóðir og vörsluaðilar lífeyrissparnaðarLög nr. 129/1997
Starfstengdir eftirlaunasjóðirLög nr. 74/2025
InnheimtuaðilarLög nr. 95/2008
Greiðslustofnanir og aðrir greiðsluþjónustuveitendurLög nr. 114/2021Lög nr. 5/2023Lög nr. 31/2019Lög nr. 78/2014
RafeyrisfyrirtækiLög nr. 17/2013
GjaldeyrisskiptaþjónustaLög nr. 140/2018
Þjónustuveitendur sýndareignaLög nr. 140/2018
Útibú erlendra fyrirtækja sem staðsett eru á Íslandi og falla undir a–e-lið 1. mgr. 2. gr. laga nr. 140/2018Lög nr. 140/2018
Umboðs- og dreifingaraðilar fyrirtækja og samsvarandi erlendra fyrirtækja með starfsemi hér á landi sem falla undir a–e-lið 1. mgr. 2. gr. laga nr. 140/2018Lög nr. 140/2018
Lánveitendur og lánamiðlararLög nr. 118/2016
Lánveitendur og lánamiðlarar samkvæmt lögum nr. 33/2013, um neytendalán, sem falla undir a-lið 1. mgr. 2. gr. laga nr. 140/2018Lög nr. 140/2018

Eftirlit á verðbréfamarkaði

Seðlabankinn hefur m.a. eftirlit með:
Yfirtökum á útgefendum hvers verðbréf hafa verið tekin til viðskipta á skipulegum verðbréfamarkaðiLög nr. 108/2007
Veitingu fjárfestingarþjónustu og ástundun fjárfestingarstarfsemi hér á landiLög nr. 115/2021
Skortsölu og skuldatryggingumLög nr. 55/2017
Afleiðuviðskiptum, miðlægum mótaðilum og afleiðuviðskiptaskrámLög nr. 15/2018
MarkaðssvikumLög nr. 60/2021
Upplýsingaskyldu útgefenda verðbréfa og flöggunarskylduLög nr. 20/2021
Fjármögnunarviðskiptum með verðbréfLög nr. 41/2023
Lýsingum verðbréfa sem boðin eru í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaðiLög nr. 14/2020
Innviðum markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækniLög nr. 56/2024

Annað eftirlit

Seðlabankinn hefur m.a. eftirlit með:
Ráðstöfunum vegna eftirlits með aðilum á þvingunarlistum og frystingu fjármunaLög nr. 68/2023
Aðgerðum gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverkaLög nr. 140/2018
VátryggingasamningumLög nr. 30/2004
Fjarsölu á fjármálaþjónustuLög nr. 33/2005
Lykilupplýsingaskjölum vegna tiltekinna fjárfestingarafurða fyrir almenna fjárfestaLög nr. 55/2021
Upplýsingagjöf um sjálfbærni á sviði fjármálaþjónustu og flokkunarkerfi fyrir sjálfbærar fjárfestingarLög nr. 25/2023

Eftirlit með slitastjórnun

Seðlabankinn hefur sérstakt eftirlit með slitum fjármálafyrirtækja sem stýrt er af slitastjórnum, óháð því hvort viðkomandi fyrirtæki sé með starfsleyfi, hafi takmarkað starfsleyfi eða starfsleyfið hafi verið afturkallað, sbr. 101. gr. a laga nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki.

Starfsemi innlendra aðila erlendis og erlendra aðila hérlendis

Um eftirlit með starfsemi innlendra aðila erlendis og erlendra aðila hér á landi gilda ákvæði sérlaga og alþjóðasamningar sem Ísland er aðili að.
Starfsemi erlendra aðila á Íslandi