Fara beint í Meginmál

Aðilar sem hafa hlotið staðfestu og starfsleyfi fyrir fjármálastarfsemi í öðrum ríkjum á Evrópska Efnahagssvæðinu (EES), er heimilt að starfa hér á landi með eða án stofnunar útibús. Starfsemi þeirra getur þó ekki hafist fyrr en að Seðlabanki Íslands hefur fengið tilkynningu þar að lútandi frá eftirlitsaðila í heimaríki fyrirtækisins. Á þetta við um fjármálafyrirtæki (lánastofnanir og verðbréfafyrirtæki), rafeyrisfyrirtæki, greiðslustofnanir, vátryggingafélög- og miðlara, rekstrarfélög verðbréfasjóða, rekstraraðila sérhæfðra sjóða og skráða lánveitendur.

Í boði er leitarvél þar sem hægt er að fletta upp þeim erlendu aðilum sem heimild hafa til að starfa hér á landi.[1]

Erlendir aðilar með staðfestu á Íslandi

Erlendur aðili Útibú/umboðsaðili/dreifingaraðili/einka- umboðsmaðurNafn Heimilisfang  Tegund þjónustu
AS CreditInfo EESTIUmboðsaðili greiðslustofnunarCreditinfo Lánstraust hf.Borgartúni 25, 105 ReykjavíkReikningsupplýsingaþjónusta
Enfuce License Services OyDreifingaraðili rafeyrisfyrirtækisYAY ehf.Lágmúla 5, 108 ReykjavíkDreifing / innlausn rafeyris
Allianz Lebensversicherungs AGÚtibú vátryggingafélags 
Alexandra Muenchmeier er í fyrirsvari fyrir félagið
Allianz Ísland hf. söluumboðDalshrauni 3, 220 HafnarfjörðurLíftryggingar, gr. II og III.
Allianz Versicherungs AGÚtibú vátryggingafélags 
Alexandra Muenchmeier er í fyrirsvari fyrir félagið
Allianz Ísland hf.  söluumboðDalshrauni 3, 220 
Hafnarfjörður
Skaðatryggingar, greinafl. 13, 16
Western Union Payment Services Ireland LimitedUmboðsaðili greiðslustofnunarÍslandspóstur ohf.Höfðabakka 9, 110 ReykjavíkPeningasending (Money remittance)
American Express Payments Europe S.L.Umboðsaðili greiðslustofnunarTeya Iceland hf.Katrínartúni 4, 105 ReykjavíkFærsluhirðing (Acquiring of payment transactions)
American Express Payments Europe S.L.Umboðsaðili greiðslustofnunarRapyd Europe hf.Dalshrauni 3, 220 HafnarfjörðurFærsluhirðing (Acquiring of payment transactions)
PM-Premium Makler GmbHÚtibú vátryggingamiðlara
Gestur Breiðfjörð Gestsson er í fyrirsvari fyrir útibúið
PM-Premium Makler GmbH, útibú á Íslandi

Garðatorgi 7,
210 Garðabær

Dreifing vátrygginga
Nasdaq CSD SEÚtibú verðbréfamiðstöðvarNasdaq CSD SE, útibú á ÍslandiLaugavegi 182, 105 ReykjavíkStarfræksla verðbréfauppgjörskerfis
Arena Wealth Management S.A.

Útibú verðbréfafyrirtækis 
Sigvaldi Stefánsson er í fyrirsvari fyrir útibúið

Arena Wealth Management S.A., útibú á Íslandi

Skálholtsstíg 7, 101 Reykjavík

Móttaka og miðlun fyrirmæla frá viðskiptavinum um einn eða fleiri fjármálagerninga, framkvæmd fyrirmæla fyrir hönd viðskiptavina, eignastýring og fjárfestingarráðgjöf.
Howden Finland OyÚtibú vátryggingamiðlara.
Bjarni Ólafsson er í fyrirsvari fyrir útibúið.
Howden Finland Oy, útibú á Íslandi

Hallgerðargötu 11, 105 Reykjavík

Dreifing vátrygginga

Erlendir verðbréfasjóðir með staðfestu innan EES

Samkvæmt 103. gr. laga nr. 116/2021 er heimilt að markaðssetja hér á landi verðbréfasjóð með staðfestu og staðfestingu í öðru ríki innan EES.

Sérhæfðir sjóðir með staðfestu utan EES

Samkvæmt 63. gr. laga nr. 45/2020 er rekstraraðilum með staðfestu og starfsleyfi innan EES heimilt að markaðssetja til fagfjárfesta hér á landi sérhæfða sjóði með staðfestu utan EES að fenginni heimild Seðlabanka Íslands.
Samkvæmt 64. gr. sömu laga er skráðum rekstraraðilum með staðfestu hér á landi heimilt að markaðssetja til fagfjárfesta hér á landi sérhæfðan sjóð með staðfestu utan EES að fenginni heimild Seðlabanka Íslands. Þá er rekstraraðila með staðfestu utan Íslands, þar á meðal skráningarskyldum rekstraraðila innan EES, heimilt að markaðssetja sérhæfðan sjóð hér á landi til fagfjárfesta að fenginni heimild Seðlabanka Íslands.


[1] Fyrirvari - leitarvélin inniheldur ekki upplýsingar um:

  • Starfsheimildir verðbréfafyrirtækja sem hafa tilkynnt um veitingu þjónustu hér á landi á grundvelli MiFID (Markets in Financial Instruments Directive)
  • Sjóði markaðssetta hér á landi af erlendum rekstrarfélögum, hvort sem er rekstrarfélög verðbréfasjóða eða rekstraraðila sérhæfðra sjóða