STORu málin – skyldur MAR-regluverksins að tilkynna grunsamleg viðskipti og fyrirmæli
Markaðssvik grafa undan trausti og trúverðugleika á verðbréfamarkaði og geta þannig haft víðtækar afleiðingar fyrir fjárfesta og aðila á markaði. Meðal annars þess vegna er eftirlit með slíkri háttsemi ekki aðeins verkefni fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands (hér eftir fjármálaeftirlitið) heldur jafnframt lögbundin skylda allra þeirra sem sjá um eða framkvæma viðskipti í atvinnuskyni skv. 2. mgr. 16. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik (MAR).