Vinnustaðurinn
Seðlabanki Íslands leggur áherslu á metnaðarfullt starfsumhverfi með það að markmiði að byggja upp trausta liðsheild. Með áherslu á virðingu og vellíðan, jafnrétti, þekkingu, fagmennsku og framsækni nær bankinn markmiðum sínum með árangursríkum hætti.
Laus störf
Laus störf eru ávallt auglýst á Starfatorgi og á ráðningarvef Seðlabankans og hægt að sækja um þau þar. Einnig er hægt að fylla út almenna umsókn á ráðningarvef bankans.
Ráðningarvefur Seðlabanka Íslands
Jafnlaunavottun
Jafnréttisstofa hefur veitt Seðlabanka Íslands heimild til að nota jafnlaunamerkið. Seðlabanki Íslands hlaut formlega jafnlaunavottun 10. janúar 2019, en það er vottun um að Seðlabankinn starfræki launakerfi sem stenst kröfur jafnlaunastaðalsins ÍST 85:2012. Seðlabankinn er fyrsti seðlabankinn í heiminum sem hlýtur jafnlaunavottun.
Seðlabanki Íslands fylgir ákvæðum laga nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna og laga nr. 151/2020 um stjórnsýslu jafnréttismála. Það er stefna Seðlabankans að allir starfsmenn njóti jafnra launa og sömu kjara og réttinda fyrir sömu eða jafnverðmæt störf þannig að enginn kynbundinn launamunur sé til staðar hjá bankanum. Seðlabankinn fylgir öllum viðeigandi lögum, reglum og kjarasamningum sem í gildi eru á hverjum tíma.
Seðlabankinn leggur áherslu á að bjóða starfsmönnum sínum samkeppnishæf laun og starfskjör. Laun starfsmanna Seðlabankans eiga að endurspegla þær kröfur sem gerðar eru til þeirra um þekkingu, ábyrgð og hæfni til að sinna starfinu.
Upplýsingar um jafnlaunastefnu Seðlabanka Íslands má nálgast hér: Jafnlaunastefna