Fara beint í Meginmál

Seðlabanki Íslands leggur áherslu á metnaðarfullt starfsumhverfi með það að markmiði að byggja upp trausta liðsheild. Með áherslu á virðingu og vellíðan, jafnrétti, þekkingu, fagmennsku og framsækni nær bankinn markmiðum sínum með árangursríkum hætti.

Starfsnemi í hlutastarfi á svið hagfræði og peningastefnu

Hefur þú áhuga á að taka þátt í rannsóknum og greiningum sem hafa áhrif á íslenskt efnahagslíf?

Seðlabanki Íslands leitar að metnaðarfullum einstaklingi í starfsnemastöðu með það að markmiði að veita innsýn í starfsemi Seðlabanka Íslands.
Sem starfsnemi tekur þú þátt í rannsóknum, greiningum og gagnavinnslu með hagfræðingum Seðlabankans.

Nánar

Reykjavík - Hlutastarf

Hefur þú áhuga á að taka þátt í rannsóknum og greiningum sem hafa áhrif á íslenskt efnahagslíf?

Seðlabanki Íslands leitar að metnaðarfullum einstaklingi í starfsnemastöðu með það að markmiði að veita innsýn í starfsemi Seðlabanka Íslands.

Sem starfsnemi tekur þú þátt í rannsóknum, greiningum og gagnavinnslu með hagfræðingum Seðlabankans. Starfið veitir dýrmæta reynslu í öflugu þekkingarumhverfi og er liður í að efla tengsl bankans við háskólasamfélagið og styðja við uppbyggingu framtíðarhagfræðinga.

Helstu verkefni:

  • Aðstoð við rannsóknar- og greiningarverkefni á sviði hagfræði og peningastefnu.
  • Aðstoð við söfnun, úrvinnslu og greiningu hagfræðilegra og tölfræðilegra gagna.
  • Þátttaka í gagnavinnslu og þróun greininga og rannsóknaverkefna.
  • Önnur verkefni undir handleiðslu sérfræðinga bankans.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Stundi grunn- eða framhaldsnámí hagfræði
  • Framúrskarandi námsárangur í viðeigandi hagfræðigreinum á háskólastigi.
  • Ríkur áhugi á hagfræði, rannsóknum og gagnagreiningu.
  • Sterk greiningar- og tölfræðihæfni.
  • Fagleg, sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð, umbótahugsun og metnaður til að ná árangri í starfi.
  • Góð færni í mannlegum samskiptum og árangursríkri teymisvinnu.
  • Hæfni til að tjá sig og miðla upplýsingum í ræðu og riti á íslensku og ensku.
  • Þekking á R, Matlab, Python eða öðrum sambærilegum greiningarverkfærum er kostur.

Sem starfsnemi færðu tækifæri til að:

  • Kynnast störfum Seðlabankans.
  • Taka þátt í rannsóknum og greiningum sem styðja við mikilvægt hlutverk Seðlabanka Íslands.
  • Vinna með reyndum sérfræðingum og njóta handleiðslu þeirra í öflugu fagumhverfi.
  • Efla greiningar-, rannsóknar- og tæknilega hæfni þína.

Frekari upplýsingar veita Lúðvík Elíasson forstöðumaður á sviði hagfræði og peningastefnu (ludvik.eliasson@sedlabanki.is), Bjarni Geir Einarsson hagfræðingur á sviði hagfræði og peningastefnu (bjarni.geir.einarsson@sedlabanki.is) og Íris Guðrún Ragnarsdóttir framkvæmdastjóri mannauðs og menningar (mannaudur@sedlabanki.is). 

Umsóknarfrestur er til og með 9. október

Um er að ræða tímabundna stöðu í hlutastarfi til eins árs. Starfsstöð er í Reykjavík. Sótt er um starfið á heimasíðu Seðlabanka Íslands, www.sedlabanki.is/storf. Með umsókn þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf ásamt einkunnayfirliti úr háskóla.

Við ráðningar í störf hjá Seðlabanka Íslands er tekið mið af jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun bankans og er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um. Laun greiðast samkvæmt kjarasamningi samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Við launasetningu starfsins er tekið mið af starfsheitinu ”nýliðar” skv. kjarasamningi. Umsóknir gilda í sex mánuði og öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Vakin er athygli umsækjenda á því að um ráðningarferlið gilda m.a. stjórnsýslulög nr. 37/1993, upplýsingalög nr. 140/2012 og lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.

Seðlabanki Íslands er sjálfstæð stofnun í eigu ríkisins sem heyrir undir forsætisráðherra. Markmið bankans er að stuðla að stöðugu verðlagi, fjármálastöðugleika og traustri og öruggri fjármálastarfsemi. Þá skal bankinn sinna viðfangsefnum sem samrýmast hlutverki hans sem seðlabanka, svo sem að varðveita gjaldeyrisforða og stuðla að virku og öruggu fjármálakerfi. Hjá Seðlabankanum starfar öflug liðsheild og leggur bankinn ríka áherslu á metnaðarfullt og hvetjandi starfsumhverfi sem einkennist af fagmennsku, heilindum, auðmýkt og áræðni.

Hagfræðingur

SEÐLABANKI ÍSLANDS óskar eftir að ráða hagfræðing í teymi rannsókna og spáa á svið hagfræði og peningastefnu.  

Nánar

Reykjavík - Fullt starf

SEÐLABANKI ÍSLANDS óskar eftir að ráða hagfræðing í teymi rannsókna og spáa á svið hagfræði og peningastefnu.

Svið hagfræði og peningastefnu hefur umsjón með greiningu á þróun innlendra og erlendra efnahags- og peningamála, gerir þjóðhags- og verðbólguspár og áhættumat sem liggja til grundvallar mótun peningastefnunnar. Greining á stöðu og efnahagshorfum hverju sinni er birt í ritinu Peningamálum og enskri útgáfu þess Monetary Bulletin. Jafnframt tekur sviðið þátt í mótun stefnu í gengis- og peningamálum og stundar rannsóknir á sviði efnahags- og peningamála.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Rannsóknir á sviði peninga- og þjóðhagfræði
  • Þróun og viðhald spálíkana
  • Þátttaka í gerð verðbólgu- og þjóðhagsspá bankans
  • Vinna í tengslum við greiningu og skrif í Peningamál
  • Þátttaka í innlendu og erlendu samstarfi
  • Tilfallandi verkefni og ráðgjöf á ábyrgðarsviðum Seðlabankans

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Meistara- eða doktorspróf í hagfræði
  • Reynsla af rannsóknum á sviði peninga- og þjóðhagfræði
  • Reynsla af notkun tölfræðiforrita í hagrannsóknum
  • Reynsla af notkun spálíkana er kostur
  • Gott vald á mæltu og rituðu máli, bæði íslensku og ensku
  • Góð hæfni í að setja fram fræðilegt efni á skýran hátt
  • Lipurð í samskiptum og góð hæfni til að vinna sjálfstætt og með öðrum
  • Frumkvæði, nákvæmni í vinnubrögðum og metnaður í starfi

Nánari upplýsingar um starfið veita Karen Á. Vignisdóttir, aðalhagfræðingur og framkvæmdastjóri hagfræði og peningastefnu (karen.vignisdottir@sedlabanki.is) og Erla Traustadóttir mannauðsráðgjafi á sviði mannauðs og menningar (mannaudur@sedlbanki.is). Umsóknarfrestur er til og með 6. október nk.

Um er að ræða 100% starfshlutfall með starfsstöð í Reykjavík. Með umsókn þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu rökstudd.

Við ráðningar í störf hjá Seðlabanka Íslands er tekið mið af jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun bankans og er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um. Laun greiðast samkvæmt kjarasamningi samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja.

Umsóknir gilda í sex mánuði og öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Vakin er athygli umsækjenda á því að um ráðningarferlið gilda m.a. stjórnsýslulög nr. 37/1993, upplýsingalög nr. 140/2012 og lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.

Seðlabanki Íslands er sjálfstæð stofnun í eigu ríkisins sem heyrir undir forsætisráðherra. Markmið bankans er að stuðla að stöðugu verðlagi, fjármálastöðugleika og traustri og öruggri fjármálastarfsemi. Þá skal bankinn sinna viðfangsefnum sem samrýmast hlutverki hans sem seðlabanka, svo sem að varðveita gjaldeyrisforða og stuðla að virku og öruggu fjármálakerfi. Hjá Seðlabankanum starfar öflug liðsheild og leggur bankinn ríka áherslu á metnaðarfullt og hvetjandi starfsumhverfi sem einkennist af fagmennsku, heilindum, auðmýkt og áræðni.

Sérfræðistörf

Við sérstakar aðstæður getur komið til þess að fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands þurfi að semja við sérfræðinga til að sinna tilteknum verkefnum eins og að athuga tiltekna þætti í starfsemi eða rekstri eftirlitsskylds aðila eða til að hafa að öðru leyti sértækt eftirlit með eftirlitsskyldum aðila.

Nánar

Reykjavík - Hlutastarf

Við sérstakar aðstæður getur komið til þess að fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands þurfi að semja við sérfræðinga til að sinna tilteknum verkefnum. Þá hefur fjármálaeftirlitið sérstaka heimild til að skipa sérfræðing til að athuga tiltekna þætti í starfsemi eða rekstri eftirlitsskylds aðila eða til að hafa að öðru leyti sértækt eftirlit með eftirlitsskyldum aðila, sbr. 2. mgr. 9. gr. laga nr. 87/1998, um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi. Jafnframt hefur fjármálaeftirlitið meðal annars heimild til að skipa við sérstakar aðstæður fjármálafyrirtæki bráðabirgðastjórnanda, sbr. 107. gr. e laga nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki, og vátryggingafélagi slitastjórn, sbr. 152. gr. laga nr. 100/2016, um vátryggingastarfsemi.

Fjármálaeftirlitið tekur við ferilskrám, og eftir atvikum kynningarbréfum, þeirra sem eru reiðubúnir að gefa kost á sér til slíkra starfa. Einnig geta fyrirtæki gefið kost á tilteknum starfsmönnum sínum til slíkra starfa. Leitað er að einstaklingum með fjölbreytta þekkingu og reynslu á sviði lögfræði, viðskiptafræði, hagfræði, verkfræði, fjármálamarkaða, reksturs, stjórnunar, upplýsingatækni, reikningsskila o.fl.

Ferilskrá, og eftir atvikum kynningarbréf, skulu gefa glögga mynd af menntun og reynslu hlutaðeigandi. Upplýsingarnar verða aðgengilegar viðeigandi stjórnendum innan fjármálaeftirlitsins ef til greina kemur að semja við sérfræðing til að sinna tilteknu verkefni. Þá skulu upplýsingar um heimilisfang, símanúmer og netfang fylgja ferilskránni. Jafnframt er mikilvægt að fram komi upplýsingar um tengsl hlutaðeigandi við einstaka eftirlitsskylda aðila. Vakin er athygli á því að almennt koma starfsmenn eftirlitsskyldra aðila ekki til greina til umræddra sérfræðistarfa.

Fyrirspurnir má senda á netfangið sedlabanki@sedlabanki.is.

Almenn umsókn

Hér getur þú sent inn almenna umsókn í tímabundin störf.

Nánar

Reykjavík - Hlutastarf

Takk fyrir að sýna því áhuga á að starfa með okkur í Seðlabanka Íslands.

Seðlabanka Íslands ber skylda til að auglýsa opinberlega laus störf samkvæmt 3. mgr. 7. gr. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, sbr. nánar reglur nr. 1000/2019 um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Starfsþjálfun

Hér getur þú sent inn umsókn um starfsþjálfun.

Nánar

Reykjavík - Fullt starf

Takk fyrir að sýna því áhuga að koma í starfsþjálfun hjá okkur í Seðlabanka Íslands.

Hér getur þú sótt um að koma til okkar í starfsþjálfun. Við förum reglulega yfir umsóknir og verðum í sambandi ef við höfum lausa starfsþjálfunarstöðu við þitt hæfi. Starfsþjálfun er einstakt tækifæri fyrir háskólanema til að öðlast hagnýta og starfstengda reynslu og er markmið okkar að bjóða reglulega upp á fjölbreytt tækifæri fyrir nemendur til að kynnast verkefnum og starfsemi bankans.

mannaudur@sedlabanki.is