Meginmál

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands

ATH: Þessi grein er frá 5. nóvember 1997 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lokoktóber 1997 og til samanburðar í lok desember 1996 ásamt breytingum í mánuðinumog frá ársbyrjun til loka október.

 Gjaldeyrisforði Seðlabankans rýrnaði um tæpa 3,7 milljarða króna íoktóber og nam í lok mánaðarins 27,1 milljarði króna. Erlendar skammtímaskuldirbankans eru óverulegar og breyttust lítið í mánuðinum.

 Á gjaldeyrismarkaði nam nettó gjaldeyrissala Seðlabankans í október 4,1milljarði króna. Eftir lækkun um 1,4% í október var gengi íslensku krónunnar ílok mánaðarins, mælt með vísitölu gengisskráningar, svipað og í byrjunársins.

 Heildareign Seðlabankans í markaðsskráðum verðbréfumjókst í október um tæpa 3,4 milljarða króna og er þá miðað við markaðsverð. Eignbankans í spariskírteinum ríkissjóðs jókst um rúma 0,3 milljarða króna enríkisbréfaeignin stóð nánast í stað. Ríkisvíxlaeignin jókst um tæpa 3,2milljarða króna og nam í mánaðarlok rúmum 3,9 milljörðum króna. KröfurSeðlabankans á innlánsstofnanir lækkuðu um 1,7 milljarð króna í október ennettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir jukust um 5 milljarða króna ognámu 8,1 milljarði króna í mánaðarlok.

 Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabankans og ErlaÁrnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

Nr. 29/1997

5. nóvember 1997