Meginmál

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands

ATH: Þessi grein er frá 3. desember 1997 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í loknóvember 1997 og til samanburðar í lok síðasta árs ásamt breytingum í mánuðinumog frá ársbyrjun til loka nóvember.

Gjaldeyrisforði Seðlabankans jókst um 1,8milljarða króna í nóvember og nam í lok mánaðarins 28,9 milljörðum króna.

Ágjaldeyrismarkaði námu nettó gjaldeyriskaup Seðlabankans í nóvember rúmum 1milljarði króna. Gengi íslensku krónunnar, mælt með vísitölu gengisskráningar,hækkaði í nóvember um 1,3%.

Heildareign Seðlabankans í markaðsskráðumverðbréfum lækkaði í nóvember um tæpa 1,3 milljarða króna og er þá miðað viðmarkaðsverð. Eign bankans í spariskírteinum ríkissjóðs jókst um rúma 0,5milljarða króna en ríkisbréfaeignin lækkaði um 0,1 milljarð króna.Ríkisvíxlaeignin lækkaði um 1,7 milljarða króna og nam í mánaðarlok rúmum 3,2milljörðum króna. Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir lækkuðu um 1,3milljarða króna í nóvember en nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanirlækkuðu um tæplega 1,2 milljarða króna og námu tæpum 7 milljörðum króna ímánaðarlok. Grunnfé bankans lækkaði um 2 milljarða króna og nam 16,4 milljörðumkróna í lok nóvember.

Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabankansog Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

Nr. 34/1997

3. desember 1997