Meginmál

Verðbólguspá Seðlabanka Íslands

ATH: Þessi grein er frá 20. janúar 1998 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Seðlabanki Íslands gerir verðbólguspá fjórum sinnum á ári, í janúar, apríl,júlí og október. Nú þegar þróun verðlags á árinu 1997 liggur fyrir spáir bankinnað verðbólga á milli áranna 1997 og 1998 verði 2,6%, en 2,3% frá upphafi tilloka ársins 1998.

Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,4% á milli þriðja ogfjórða ársfjórðungs 1997, sem samsvarar 1,7% verðbólgu á heilu ári. SpáSeðlabankans frá því í október gerði ráð fyrir heldur meiri hækkun, eða 0,6%.Frávikið er þó vel inna tölfræðilegra skekkjumarka. Verðbólga milli áranna 1996og 1997 var 1,8% eins og Seðlabankinn spáði í október. Verðbólga yfir árið var0,1% minni en spáð var í október eða 2,2%.

Á fyrri hluta yfirstandandi ársmun verðbólga aukast nokkuð þegar áhrifa 4% samningsbundinna launahækkana íársbyrjun tekur að gæta í verðlagi, auk þess sem nú er gert ráð fyrir meiralaunaskriði en í október, eða 1½% bæði árin 1997 og 1998. Einnig er gert ráðfyrir að hækkun markaðsverðs húsnæðis umfram almenna verðlagsþróun muni stuðlaað meiri hækkun vísitölu neysluverðs á þessu ári en ella. Á móti kemur aðreiknað er með að innflutningsverð í erlendri mynt muni standa í stað árið 1998.Reiknað er með að innflutningsverð í erlendri mynt hafi einnig haldist því semnæst óbreytt árið 1997, en í októberspá bankans var gert ráð fyrir 1% hækkun. Íforsendum um þróun innflutningsverðs er tekið tillit til verðþróunar hráefna uppá síðkastið og áhrifa frá kreppunni í Asíulöndum á verðlagsþróun í heiminum.Miðað við ofangreindar forsendur spáir Seðlabankinn 0,8% hækkun neysluverðsmilli fjórða ársfjórðungs 1997 og fyrsta ársfjórðungs 1998. Verðlagshækkanirverða heldur lægri síðar á árinu. Spáð er mjög svipaðri hækkun frá upphafi tilloka árs 1998 og varð á árinu 1997 eða 2,3%, en hækkun á milli ársmeðaltalavísitölunnar verður nokkru meiri eða 2,6% sökum áhrifa frá hækkun vísitölunnar áfyrra ári. Sjá nánar meðfylgjandi töflu.

Seðlabankinn hefur einnig lagt mat áþróun raungengis krónunnar (sjá meðfylgjandi töflu). Raungengi á mælikvarðaverðlags hækkaði um 0,7% milli áranna 1996 og 1997 samkvæmt fyrirliggjandimælingum. Gangi verðlagsspáin eftir og að gefnu óbreyttu gengi frá miðjum janúar1998 mun raungengi á mælikvarða verðlags hækka um 1% milli áranna 1997 og 1998.Á mælikvarða launakostnaðar hækkaði raungengi um 2,9% milli áranna 1996 og 1997og spáð er að raungengi á þennan mælikvarða hækki um 3,1% á yfirstandandi ári.Þrátt fyrir nokkra hækkun raungengis, verður raungengi á árinu 1998 enn u.þ.b.5½% undir meðalstöðu raungengis frá 1980.

Nánari upplýsingar veitir Már Guðmundsson aðalhagfræðingur bankans, í síma569 9600.

Nr. 2/1998

20. janúar 1998