Meginmál

Bandaríska matsfyrirtækið Moody's staðfestir lánshæfiseinkunn fyrir Ísland

ATH: Þessi grein er frá 11. desember 1998 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Í frétt bandaríska matsfyrirtækisins Moody's um Ísland, sem gefin var út íNew York í dag, kemur fram það álit fyrirtækisins að há lánshæfiseinkunn semÍsland fær, eða Aa3/Aaa, endurspegli bætt jafnvægi og aukna breidd íþjóðarbúskapnum undanfarin ár. Þættir sem stuðla að hárri einkunn að dómifyrirtækisins eru meðal annars góð og jöfn lífskjör, stöðugleiki í stjórnmálum,styrkir innviðir og gjöfular náttúruauðlindir. Víðtækar umbætur hafi borið ávöxtí öflugum hagvexti, hækkandi tekjum, hraðri fjölgun nýrra starfa, bættrisamkeppnisstöðu við útlönd og miklum erlendum fjárfestingum. Atvinnuleysi séorðið óverulegt en samt hafi verðbólga haldist lág. Fjárhagur hins opinberabatni jafnt og þétt. Búast megi við enn frekari lækkun á skuldum hins opinbera,sem teljist vera hóflegar nú þegar. Horfur séu á stöðugu lánshæfi ríkisins eneinkunnir þess eru Aa3 fyrir skuldbindingar í erlendri mynt og Aaa fyrirskuldbindingar í krónum. 

Moody's tekur jafnframt fram að sífellt skilvirkari fiskveiðistjórn sé afarmikilvæg fyrir lánshæfi landsins í ljósi þýðingar atvinnugreinarinnar fyrirþjóðarbúskapinn og hlut hennar í gjaldeyrisöflun. Þá sé líka traustvekjandi aðhlutur sjávarútvegs í efnahagslífinu minnki stöðugt, einkum vegna umfangsmikillaerlendra fjárfestingarverkefna. Enda þótt þessar framkvæmdir hafi tímabundiðleitt til mikils halla á vöruskiptum og viðskiptum við útlönd og hækkunar áerlendum skuldahlutföllum sé búist við að þessi staða batni jafnt og þétt. Þegarnýjar verksmiðjur hafi náð fullri útflutningsgetu dragi úr þörf á innflutningivegna þessara verkefna og útflutningur vaxi. 

Moody's varar við því að umfangsmiklar stóriðjuframkvæmdir samfara miklumlaunahækkunum geti leitt til aukinnar eftirspurnar á komandi árum. Moody'sbendir á að vönduð hagstjórn sé nauðsynleg til að koma í veg fyrir ofþenslu íþjóðarbúskapnum, of mikið innstreymi fjármagns og söfnun erlendra skulda afhálfu einkaaðila. Þetta eigi sérstaklega við í ljósi þess hvað umfangþjóðarbúskaparins er lítið og hann opinn út á við.

Nánari upplýsingar veita Birgir Ísl. Gunnarsson, formaður bankastjórnar, ogÓlafur Ísleifsson, framkvæmdastjóri alþjóðasviðs bankans, í síma 569 9600. 

Nr. 73/1998

11. desember 1998