Meginmál

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands

ATH: Þessi grein er frá 6. ágúst 1999 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lokjúlí 1999 og til samanburðar í lok desember 1998 ásamt breytingum í mánuðinum.

Gjaldeyrisforði Seðlabankans jókst um 2,3 milljarða króna í júlí og nam ílok mánaðarins 33,4 milljörðum króna (jafnvirði 459 milljóna bandaríkjadala ágengi í mánaðarlok). Að hluta til stafar aukning forðans af lántöku bankanserlendis, en að henni frátalinni nam aukningin 0,9 milljörðum króna í mánuðinumog 6 milljörðum króna frá ársbyrjun, svo sem sjá má á liðnum "gjaldeyrisstaðanettó" í meðfylgjandi yfirliti.

Erlend skammtímalán bankans jukust ímánuðinum um 1,4 milljarð og námu þau 1,5 milljarði í mánaðarlok, en hafa lækkaðum 2,5 milljarða frá áramótum. Löng erlend lán stóðu aftur á móti í stað og nemanú 3,4 milljörðum króna, en hafa lækkað um 1,7 milljarð frá áramótum.

Íjúlímánuði námu viðskipti á millibankamarkaði með gjaldeyri alls 43,8 milljörðumkróna en Seðlabankinn átti engin viðskipti á þeim markaði í mánuðinum. Gengiíslensku krónunnar, mælt með vísitölu gengisskráningar, lækkaði um 0,1% ímánuðinum.

Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 11,6 milljörðum króna íjúlílok á markaðsverði og hækkuðu um 3,0 milljarða í mánuðinum. Breytingin fólstöll í kaupum á ríkisvíxlum, en staða þeirra í lok mánaðarins nam 5,3 milljörðumkróna.

Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir lækkuðu um 0,5 milljarða í júlíog námu þær 15,0 milljörðum í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanirhækkuðu aftur á móti um 0,7 milljarða og  voru 5,3 milljarðar króna í lokhans.

Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir hækkuðu um 3,4milljarða króna í mánuðinum og voru neikvæðar um 2 milljarða króna í lokjúlí.

Grunnfé bankans jókst um 4,8 milljarða króna í mánuðinum og nam það26,8 milljörðum króna í lok hans.

Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttiraðalbókari í síma 569-9600.

Nr. 49/1999

6. ágúst 1999