Í dag var kristnihátíðarnefnd formlega afhenturminnispeningur úr gulli sem Seðlabanki Íslands gefur út í tilefni 1000 árakristni á Íslandi. Á annarri hlið hans er skjaldarmerki íslenska lýðveldisins ená hinni mynd af húni á bagli eða biskupsstaf sem fannst á Þingvöllum 1957.Bagallinn er talinn frá fyrstu öld íslenskrar kristni og er einn elstikirkjugripur sem fundist hefur hér á landi. Minnispeningurinn er úr gulli að9/10 hlutum, 8,65g að þyngd, eða kvartúnsa af hreinu gulli, og er 23 mm íþvermál. Hann verður löglegur gjaldmiðill að verðgildi 10.000 krónur, en aðeinsverða slegin 3000 eintök í sérunninni gljásláttu. Peninginn teiknaði ÞrösturMagnússon teiknari FIT, en sláttu annast Den Kongelige Mynt í Noregi
Sala peningsins hefst 1. febrúar og verður söluverð hans 15.000 krónur enhann verður í vandaðri viðaröskju með kynningartexta á íslensku og ensku.Peningurinn verður til sölu í bönkum og sparisjóðum og hjá helstu myntsölum umland allt.
Ágóði af útgáfu minnispeningsins rennur í Þjóðhátíðarsjóð eins og af fyrriminnispeningaútgáfum, en sjóðurinn var stofnaður 1977 og veitir árlega styrkitil varðveislu og verndar þjóðlegra menningarminja.
Myndir af peningnum hér að neðan eru í hlutföllunum 2 á móti 1.
Nánari upplýsingar veitir Ingvar A. Sigfússon rekstrarstjóri SeðlabankaÍslands í síma 569-9600.
Nr. 4/2000
31. janúar 2000