Meginmál

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands

ATH: Þessi grein er frá 7. júní 2000 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lokmaí 2000 og til samanburðar í lok desember 1999 ásamt breytingum í maí og fráársbyrjun. 

 Gjaldeyrisforði Seðlabankans stóð því sem næst í staðí maí og nam 32,4 milljörðum króna í lok mánaðarins (jafnvirði 428 milljónabandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Gengi íslensku krónunnar, mælt meðvísitölu gengisskráningar, lækkaði í mánuðinum um 0,8%.

Erlend skammtímalánbankans hækkuðu um 1,1 milljarð króna í mánuðinum og námu þau 9,5 milljörðumkróna í maílok. 

Heildareign Seðlabankans í markaðsskráðum verðbréfumnam 10 milljörðum króna í maílok miðað við markaðsverð og hækkaði um 1,3milljarða króna í mánuðinum.  Þar af eru markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs7,2 milljarðar króna.

Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir lækkuðu um 4,2milljarða króna í maí og námu þær 26,6 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfurá aðrar fjármálastofnanir lækkuðu einnig um 2,6 milljarða króna í mánuðinum ogvoru 5,3 milljarðar króna í lok hans.

Nettókröfur bankans á ríkissjóð ogríkisstofnanir hækkuðu um 7 milljarða króna í maí og voru þær neikvæðar um 2,8milljarða króna í lok mánaðarins.  Þar með hafa nettókröfur á ríkissjóð ogríkisstofnanir hækkað um 8,7 milljarða króna frá áramótum.

Grunnfé bankanshækkaði um 1,8 milljarða króna í mánuðinum og nam 28,8 milljörðum króna í lokhans.

 Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og ErlaÁrnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

Nr. 13/2000

7. júní 2000