Meginmál

Seðlabanki Íslands hækkar vexti

ATH: Þessi grein er frá 16. júní 2000 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans íviðskiptum hans við lánastofnanir um 0,5 prósentustig með gildistöku 19. júní2000. Ávöxtun í tilboðum bankans á Verðbréfaþingi Íslands í ríkisvíxla hækkareinnig samsvarandi. Þá hækkar ávöxtun bankans í endurhverfum viðskiptum um 0,5prósentustig á næsta uppboði og vextir á viðskipta- og bindireikningumlánastofnana þann 21. júní.

Frá því að Seðlabankinn hækkaði vexti í febrúar sl. hefur dregið úr þvíaðhaldi sem fólgið er í stýrivöxtum bankans.  Vextir seðlabanka í ýmsumnágrannalöndum hafa verið hækkaðir, nú síðast á hjá Seðlabanka Evrópu, Danmörku,Noregi og Sviss.

Vaxtahækkunin nú staðfestir þann ásetning bankans að fylgja áframpeningastefnu sem stuðlar að sterku gengi krónunnar og þar með minni verðbólguen ella.

Nánari upplýsingar veitir Birgir Ísleifur Gunnarsson formaður bankastjórnarbankastjórnar Seðlabanka Íslands í síma 569-9600.

Nr. 15/2000

16. júní 2000