Fara beint í Meginmál

Helstu liðir í efnahag Seðlabanka Íslands 7. ágúst 2001

Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok júlí 2001 og til samanburðar í lok desember 2000 ásamt breytingum í júlí 2001 og frá ársbyrjun 2001.

Gjaldeyrisforði Seðlabankans minnkaði um 1,6 milljarða króna í júlí og nam 34,2 milljörðum króna í lok mánaðarins (jafnvirði 342 milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Gengi íslensku krónunnar, mælt með vísitölu gengisskráningar, hækkaði um 2,5% í mánuðinum.

Erlend skammtímalán bankans lækkuðu um 0,7 milljarða króna í mánuðinum og námu 28,3 milljörðum króna í júlílok.

Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 5 milljörðum króna í júlílok miðað við markaðsverð. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs í eigu bankans námu 2,1 milljarði króna.

Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir lækkuðu um 1,8 milljarða króna í júlí og námu 40,5 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir lækkuðu einnig lítillega í mánuðinum og voru 23,7 milljarðar króna í lok mánaðarins.

Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir hækkuðu um 4,8 milljarða króna í júlí og voru neikvæðar um 8,7 milljarða króna í lok mánaðarins, þ.e. nettóinnstæður ríkissjóðs námu 8,7 milljörðum króna.

Grunnfé bankans hækkaði lítillega í júlímánuði og nam það 30,1 milljarði króna í lok hans.

Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í milljónum króna 
Staða í lok tímabilsHreyfingar 2001
Desember 2000Júlí  2001Frá áramótumÍ júlí
Eignaliðir
Gjaldeyrisforði34.28534.212-73-1.623
Markaðsskráð verðbréf6.5465.049-1.49733
Ríkissjóðs3.6822.095-1.58717
Annarra2.8652.9548917
Kröfur á innlánsstofnanir38.97840.5201.543-1.834
Kröfur á aðrar fjármálastofnanir13.07423.73310.659-135
Skuldaliðir
Erlendar skuldir til skamms tíma15.76328.28212.519-741
Seðlar og mynt8.6729.052380118
Almennar innstæður innlánsstofnana2.4952.412-82513
Staða á bindireikningum annarra fjármálastofnana21.24918.591-2.658-564
Almennar innstæður annarra fjármálastofnana745434-311-692
Staða á bindireikningum annarra fjármálastofnana7594.2673.5082.291
Liðir til skýringar
Gjaldeyrisstaða Seðlabankans, nettó18.5225.930-12.592-882
Kröfur á ríkissjóð og ríkisstofnanir, nettó-12.119-8.7263.3934.815
Kröfur á aðra, brúttó52.20764.34112.134-1.983
Grunnfé32.41630.056-2.36068

Skýringar:
Gjaldeyrisforði sýnir brúttóeign Seðlabankans í erlendum gjaldeyri. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs sýna eign bankans í spariskírteinum ríkissjóðs, ríkisbréfum og ríkisvíxlum. Markaðsskráð verðbréf annarra eru húsbréf og húsnæðisbréf. Kröfur á innlánsstofnanir eru brúttókröfur bankans á innlánsstofnanir. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir eru brúttókröfur bankans á þessar stofnanir. Erlendar skuldir til skamms tíma sýna skammtímalán sem Seðlabankinn tekur við og við, m.a. í því skyni að styrkja gjaldeyrisforðann. Seðlar og mynt sýna heildarfjárhæð seðla og myntar í umferð utan Seðlabanka. Almennar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður þeirra á viðskiptareikningum í Seðlabankanum og bundnar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður sem þeim er skylt að eiga í Seðlabankanum í samræmi við bindiskyldu sem bankinn ákveður. Neðanmáls eru sýndir fjórir liðir til skýringar, í fyrsta lagi nettógjaldeyrisstaða Seðlabankans sem sýnir erlendar eignir til skamms tíma að frádregnum erlendum skuldum til skamms tíma, í öðru lagi nettókröfur Seðlabankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir, þ.e. skuldir þessara aðila við Seðlabankann að frádregnum innstæðum þeirra í bankanum, í þriðja lagi innlendar brúttókröfur á aðra en ríkið, og í fjórða lagi grunnfé bankans en til þess teljast seðlar og mynt í umferð og innstæður innlánsstofnana í Seðlabankanum.