Meginmál

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands

ATH: Þessi grein er frá 6. desember 2001 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í loknóvember 2001 og til samanburðar í lok desember 2000 ásamt breytingum í nóvember2001 og frá ársbyrjun 2001.

Gjaldeyrisforði Seðlabankans minnkaði um 3,2milljarða króna í nóvember og nam 37 milljörðum króna í lok mánaðarins(jafnvirði 344 milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Erlendskammtímalán bankans lækkuðu um 0,6 milljarða króna í mánuðinum og námu 13milljörðum króna í lok hans. Gjaldeyrisstaða Seðlabankans nettó nam því 24milljörðum króna í lok mánaðarins. Breytingar á gjaldeyrisforða oggjaldeyrisstöðu stafa af lánahreyfingum ríkissjóðs. Gengi íslensku krónunnar,mælt með vísitölu gengisskráningar, lækkaði um 2,5% í mánuðinum.

Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 5,1 milljarði króna í nóvemberlokmiðað við markaðsverð. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs í eigu bankans námu 2,1milljarði króna.

Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir lækkuðu um 0,6 milljarða króna ínóvember og námu 54,3 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrarfjármálastofnanir hækkuðu um 3 milljarða króna í mánuðinum og voru 26,1milljarður króna í lok hans.

Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir hækkuðu um 3,8 milljarðakróna í nóvember og voru neikvæðar um 39,2 milljarða króna í lok mánaðarins.

Grunnfé bankans hækkaði í nóvember um 3,3 milljarða króna og nam 32,3milljörðum króna í lok mánaðarins.

Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttiraðalbókari í síma 569-9600.

Skýringar:

Gjaldeyrisforði sýnir brúttóeign Seðlabankans í erlendumgjaldeyri. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs sýna eign bankans í spariskírteinumríkissjóðs, ríkisbréfum og ríkisvíxlum. Markaðsskráð verðbréf annarra eruhúsbréf og húsnæðisbréf. Kröfur á innlánsstofnanir eru brúttókröfur bankans áinnlánsstofnanir. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir eru brúttókröfur bankans áþessar stofnanir. Erlendar skuldir til skamms tíma sýna skammtímalán semSeðlabankinn tekur við og við, m.a. í því skyni að styrkja gjaldeyrisforðann.Seðlar og mynt sýna heildarfjárhæð seðla og myntar í umferð utan Seðlabanka.Almennar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæðurþeirra á viðskiptareikningum í Seðlabankanum og bundnar innstæðurinnlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður sem þeim er skylt aðeiga í Seðlabankanum í samræmi við bindiskyldu sem bankinn ákveður. Neðanmálseru sýndir fjórir liðir til skýringar, í fyrsta lagi nettógjaldeyrisstaðaSeðlabankans sem sýnir erlendar eignir til skamms tíma að frádregnum erlendumskuldum til skamms tíma, í öðru lagi nettókröfur Seðlabankans á ríkissjóð ogríkisstofnanir, þ.e. skuldir þessara aðila við Seðlabankann að frádregnuminnstæðum þeirra í bankanum, í þriðja lagi innlendar brúttókröfur á aðra enríkið, og í fjórða lagi grunnfé bankans en til þess teljast seðlar og mynt íumferð og innstæður innlánsstofnana í Seðlabankanum.

Nr. 42/2001

6. desember 2001