Fara beint í Meginmál

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands 5. apríl 2002

Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Ís­lands í lok mars 2002 og til samanburðar í lok desember 2001 ásamt breytingum í mars 2002 og frá ársbyrjun 2002.

Gjaldeyrisforði Seðlabankans dróst saman um 0,3 milljarða króna í mars og nam 36 milljörðum króna í lok mánaðarins (jafnvirði 362 milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Erlend skammtímalán bankans lækkuðu um 1,1 milljarð króna í mánuðinum og námu 20 milljörðum króna í lok hans. Gengi íslensku krónunnar styrktist í mánuðinum um 0,02%.

Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 5,2 milljörðum króna í marslok miðað við markaðsverð. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs í eigu bankans námu 2,2 milljörðum króna.

Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir jukust í mars um 4,5 milljarða króna og námu 90,4 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir breyttust lítið í mánuðinum og námu 5,5 milljörðum króna í lok hans.

Seðlar og mynt í umferð jukust um rúmlega hálfan milljarð króna í mars.

Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir hækkuðu um 1,3 milljarða króna í mars og voru neikvæðar um 31,4 milljarða króna í lok mánaðarins, þ.e. nettóinnstæður ríkissjóðs námu 31,4 milljörðum króna.

Grunnfé bankans jókst í mars um 5,9 milljarða króna og nam 40,5 milljörðum króna í mánaðarlok.

Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabankans
Í milljónum króna
Staða í lok tímabilsHreyfingar 2002
DesemberMarsFrá ára-Í mars
Eignaliðir :20012002mótum
Gjaldeyrisforði36.57336.033-541-347
Markaðsskráð verðbréf5.0995.1787956
Ríkissjóðs2.1442.2247956
Annarra2.9542.95400
Kröfur á innlánsstofnanir54.05390.38736.3344.501
Kröfur á aðrar fjármálastofnanir22.7745.464-17.311-24
Skuldaliðir:
Erlendar skuldir til skamms tíma14.97919.9795.000-1.099
Seðlar og mynt9.1749.081-93565
Almennar innstæður innlánsstofnana9652.3431.3791.419
Staða á bindireikningum innlánsstofnana17.67829.09011.4123.874
Almennar innstæður annarra fjármálastofnana8371.324487664
Staða á bindireikningum annarra fjármálastofnana1.2881.102-18769
Liðir til skýringar :
Gjaldeyrisstaða Seðlabankans, nettó:21.59516.054-5.541752
Kröfur á ríkissjóð og ríkisstofnanir, nettó:-31.099-31.351-2521.345
Kröfur á aðra, brúttó76.93295.95519.0234.488
Grunnfé:27.81740.51412.6975.858

Skýringar:

Gjaldeyrisforði sýnir brúttóeign Seðlabankans í erlendum gjaldeyri. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs sýna eign bankans í spariskírteinum ríkissjóðs, ríkisbréfum og ríkisvíxlum. Markaðsskráð verðbréf annarra eru húsbréf og húsnæðisbréf. Kröfur á innlánsstofnanir eru brúttókröfur bankans á innláns­stofnanir. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir eru brúttókröfur bankans á þessar stofnanir. Erlendar skuldir til skamms tíma sýna skammtímalán sem Seðlabankinn tekur við og við, m.a. í því skyni að styrkja gjaldeyrisforðann. Seðlar og mynt sýna heildarfjárhæð seðla og myntar í umferð utan Seðlabanka.  Almennar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður þeirra á viðskiptareikningum í Seðlabankanum og bundnar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður sem þeim er skylt að eiga í Seðlabankanum í samræmi við bindiskyldu sem bankinn ákveður. Neðanmáls eru sýndir fjórir liðir til skýringar, í fyrsta lagi nettógjaldeyrisstaða Seðlabankans sem sýnir erlendar eignir til skamms tíma að frádregnum erlendum skuldum til skamms tíma, í öðru lagi nettókröfur Seðlabankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir, þ.e. skuldir þessara aðila við Seðlabankann að frádregnum innstæðum þeirra í bankanum, í þriðja lagi innlendar brúttókröfur á aðra en ríkið, og í fjórða lagi grunnfé bankans en til þess teljast seðlar og mynt í umferð og innstæður innlánsstofnana í Seðlabankanum.

Nr. 12/2002

5. apríl 2002