Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lokapríl 2002 og til samanburðar í lok desember 2001 ásamt breytingum í apríl 2002og frá ársbyrjun 2002.
Gjaldeyrisforði Seðlabankans jókst um 1,9milljarða króna í apríl og nam 37,9 milljörðum króna í lok mánaðarins (jafnvirði404 milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Erlend skammtímalánbankans lækkuðu um 9,5 milljarða króna í mánuðinum og námu 10,5 milljörðum krónaí lok hans. Þessar breytingar má rekja til lánahreyfinga ríkissjóðs. Gengi íslensku krónunnar styrktist í mánuðinum um 3,9%.
Markaðsskráð verðbréfí eigu bankans námu 4,6 milljörðum króna í apríl lok miðað við markaðsverð.Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs í eigu bankans námu 1,7 milljörðum króna.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir lækkuðu í apríl um 11,8 milljarðakróna og námu 78,6 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrarfjármálastofnanir breyttust lítið í mánuðinum og námu 5,5 milljörðum króna ímánaðarlok.
Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir lækkuðuum 5,4 milljarða króna í apríl og voru neikvæðar um 36,8 milljarða króna í lokmánaðarins, þ.e. nettóinnstæður ríkissjóðs námu 36,8 milljörðumkróna.
Grunnfé bankans dróst saman í apríl um 4,5 milljarða króna og nam 36,1milljarði króna í mánaðarlok.
Nánari upplýsingar veita bankastjórarSeðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.
Skýringar:
Gjaldeyrisforðisýnir brúttóeign Seðlabankans í erlendum gjaldeyri. Markaðsskráð verðbréfríkissjóðs sýna eign bankans í spariskírteinum ríkissjóðs, ríkisbréfum ogríkisvíxlum. Markaðsskráð verðbréf annarra eru húsbréf og húsnæðisbréf. Kröfur áinnlánsstofnanir eru brúttókröfur bankans á innlánsstofnanir. Kröfur á aðrarfjármálastofnanir eru brúttókröfur bankans á þessar stofnanir. Erlendar skuldirtil skamms tíma sýna skammtímalán sem Seðlabankinn tekur við og við, m.a. í þvískyni að styrkja gjaldeyrisforðann. Seðlar og mynt sýna heildarfjárhæð seðla ogmyntar í umferð utan Seðlabanka. Almennar innstæður innlánsstofnana ogannarra fjármálastofnana eru innstæður þeirra á viðskiptareikningum íSeðlabankanum og bundnar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnanaeru innstæður sem þeim er skylt að eiga í Seðlabankanum í samræmi viðbindiskyldu sem bankinn ákveður. Neðanmáls eru sýndir fjórir liðir tilskýringar, í fyrsta lagi nettógjaldeyrisstaða Seðlabankans sem sýnir erlendareignir til skamms tíma að frádregnum erlendum skuldum til skamms tíma, í öðrulagi nettókröfur Seðlabankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir, þ.e. skuldirþessara aðila við Seðlabankann að frádregnum innstæðum þeirra í bankanum, íþriðja lagi innlendar brúttókröfur á aðra en ríkið, og í fjórða lagi grunnfébankans en til þess teljast seðlar og mynt í umferð og innstæður innlánsstofnanaí Seðlabankanum.
Nr. 16/2002
7. maí 2002