Fara beint í Meginmál

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands 7. maí 2002

Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok apríl 2002 og til samanburðar í lok desember 2001 ásamt breytingum í apríl 2002 og frá ársbyrjun 2002. 
Gjaldeyrisforði Seðlabankans jókst um 1,9 milljarða króna í apríl og nam 37,9 milljörðum króna í lok mánaðarins (jafnvirði 404 milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Erlend skammtímalán bankans lækkuðu um 9,5 milljarða króna í mánuðinum og námu 10,5 milljörðum króna í lok hans. Þessar breytingar má rekja til lánahreyfinga ríkissjóðs. Gengi íslensku krónunnar styrktist í mánuðinum um 3,9%.
Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 4,6 milljörðum króna í apríllok miðað við markaðsverð. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs í eigu bankans námu 1,7 milljörðum króna.  
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir lækkuðu í apríl um 11,8 milljarða króna og námu 78,6 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir breyttust lítið í mánuðinum og námu 5,5 milljörðum króna í mánaðarlok. 
Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir lækkuðu um 5,4 milljarða króna í apríl og voru neikvæðar um 36,8 milljarða króna í lok mánaðarins, þ.e. nettóinnstæður ríkissjóðs námu 36,8 milljörðum króna.
Grunnfé bankans dróst saman í apríl um 4,5 milljarða króna og nam 36,1 milljarði króna í mánaðarlok. 
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabankans
Í milljónum króna
Staða í lok tímabilsHreyfingar 2002
DesemberAprílFrá ára-Í apríl
Eignaliðir :20012002mótum
Gjaldeyrisforði36.57337.9541.3811.922
Markaðsskráð verðbréf5.0994.622-477-556
Ríkissjóðs2.1441.668-477-556
Annarra2.9542.95400
Kröfur á innlánsstofnanir54.05378.58724.534-11.800
Kröfur á aðrar fjármálastofnanir22.7745.518-17.25654
Skuldaliðir:
Erlendar skuldir til skamms tíma14.97910.452-4.526-9.526
Seðlar og mynt9.1748.853-321-228
Almennar innstæður innlánsstofnana9653.4592.4941.109
Staða á bindireikningum innlánsstofnana17.67823.7646.086-5.339
Almennar innstæður annarra fjármálastofnana837387-450-940
Staða á bindireikningum annarra fjármálastofnana1.2881.037-252-65
Liðir til skýringar :
Gjaldeyrisstaða Seðlabankans, nettó:21.59527.5025.90711.448
Kröfur á ríkissjóð og ríkisstofnanir, nettó:-31.099-36.767-5.668-5.413
Kröfur á aðra, brúttó76.93284.2037.271-11.760
Grunnfé:27.81736.0768.260-4.458

Skýringar:

Gjaldeyrisforði sýnir brúttóeign Seðlabankans í erlendum gjaldeyri. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs sýna eign bankans í spariskírteinum ríkissjóðs, ríkisbréfum og ríkisvíxlum. Markaðsskráð verðbréf annarra eru húsbréf og húsnæðisbréf. Kröfur á innlánsstofnanir eru brúttókröfur bankans á innláns­stofnanir. Kröfur á aðrar fjár­málastofnanir eru brúttókröfur bankans á þessar stofnanir. Erlendar skuldir til skamms tíma sýna skammtímalán sem Seðlabankinn tekur við og við, m.a. í því skyni að styrkja gjaldeyrisforðann. Seðlar og mynt sýna heildarfjárhæð seðla og myntar í umferð utan Seðlabanka.  Almennar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður þeirra á viðskiptareikningum í Seðlabankanum og bundnar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður sem þeim er skylt að eiga í Seðlabankanum í samræmi við bindiskyldu sem bankinn ákveður. Neðanmáls eru sýndir fjórir liðir til skýringar, í fyrsta lagi nettó­gjaldeyrisstaða Seðlabankans sem sýnir erlendar eignir til skamms tíma að frá­dregnum erlendum skuldum til skamms tíma, í öðru lagi nettókröfur Seðlabankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir, þ.e. skuldir þessara aðila við Seðlabankann að frá­dregnum innstæðum þeirra í bankanum, í þriðja lagi innlendar brúttókröfur á aðra en ríkið, og í fjórða lagi grunnfé bankans en til þess teljast seðlar og mynt í umferð og innstæður innlánsstofnana í Seðlabankanum.

Nr. 16/2002
7. maí 2002