Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækkaávöxtun í endurhverfum viðskiptum bankans við lánastofnanir um 0,5 prósentur fránæsta uppboði á endurhverfum verðbréfasamningum sem haldið verður þriðjudaginn21. maí n.k. Bankinn hefur þar með lækkað stýrivexti sína um 1,3 prósentur frá1. apríl sl. og um 2,1 prósentu frá því í nóvember sl. Daglánavextir bankansverða einnig lækkaðir um 0,5 prósentur frá 21. maí n.k. en vextir á innstæðum áviðskiptareikningum lánastofnana í bankanum verða lækkaðir um 0,2 prósentur.
Í ársfjórðungsriti bankans Peningamálum sem gefið var út 7. maí sl. var sagtað yrði allri óvissu um að núverandi kjarasamningar héldu eytt í þessum mánuðimyndi bankinn að öllum líkindum lækka vexti sína skjótt í kjölfarið. Þessarióvissu hefur nú verið eytt þar eð vísitala neysluverðs í maí var undirviðmiðuninni sem sett var í samkomulagi ASÍ og Samtaka atvinnulífsins í desembersl. Um frekari rökstuðning að baki vaxtalækkuninni vísast til greiningarinnar íPeningamálum. Hjaðni verðbólgan áfram í samræmi við spá Seðlabankans sem birtvar í Peningamálum mun Seðlabankinn að óbreyttu lækka vexti sína frekar ákomandi mánuðum.
Nánari upplýsingar veitir Birgir Ísleifur Gunnarssonformaður bankastjórnar Seðlabanka Íslands í síma 569-9600.
Nr. 17/2002
16. maí 2002