Í samræmi við reglur um viðskipti Seðlabanka Íslands við lánastofnanir fórfram uppboð á endurhverfum verðbréfasamningum í dag, þriðjudaginn 25. júní.Samningstíminn er 14 dagar, en þá hverfa verðbréfin til fyrri eigenda á ný.
Notuð var fastverðsaðferð og bauðst Seðlabankinn til að kaupa verðbréf áávöxtunarkröfunni 8,5%. Engin fjárhæðarmörk voru í uppboðinu. Samtals bárusttilboð að fjárhæð 41,2 milljarðar króna en á innlausn voru 34,3 milljarðarkróna. Næsta uppboð er fyrirhugað 2. júlí n.k.
Línuritið sýnir stöðu samninga um endurhverf viðskipti Seðlabankans ágrundvelli reglubundinna uppboða. Auk þeirra á Seðlabankinn viðskipti við ríkiog lánastofnanir sem einnig hafa áhrif á lausafjármyndun.
Nánari upplýsingar veitir Gerður Ísberg staðgengill framkvæmdastjórapeningamálasviðs, í síma 569-9664.
Nr. 26/2002
25. júní 2002