Fara beint í Meginmál

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands 4. júlí 2002

Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok júní 2002 og til samanburðar í lok desember 2001 ásamt breytingum í júní 2002 og frá ársbyrjun 2002.  
Gjaldeyrisforði Seðlabankans dróst saman um 1 milljarð króna í júní og nam 35,4 milljörðum króna í lok mánaðarins (jafnvirði 410 milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok).  Erlend skammtímalán bankans hækkuðu um 0,4 milljarða króna í mánuðinum og námu 15,4 milljörðum króna í lok hans.  Gengi íslensku krónunnar styrktist í mánuðinum um 1,4% og hefur þar með styrkst um 10% frá áramótum.
Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 4,6 milljörðum króna í júnílok miðað við markaðsverð. Þar af námu markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs 1,7 milljarði króna.  
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir jukust um 4,6 milljarða króna í júní og námu 83,4 milljörðum króna í lok mánaðarins.  Kröfur á aðrar fjármálastofnanir breyttust lítið í mánuðinum og námu 5,6 milljörðum króna í mánaðarlok.  
Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir hækkuðu um 0,9 milljarða króna í júní og voru neikvæðar um 29,4 milljarða króna í lok mánaðarins, þ.e. nettóinnstæður ríkissjóðs námu 29,4 milljörðum króna.
Grunnfé bankans jókst um 3,6 milljarða í júní og nam það 39,9 milljörðum króna í mánaðarlok. 
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

Prentvæn útgáfa fréttar (pdf-skjal)

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabankans
Í milljónum króna
Staða í lok tímabilsHreyfingar 2002
DesemberJúníFrá ára-Í júní
Eignaliðir :20012002mótum
Gjaldeyrisforði36.57335.353-1.220-1.046
Markaðsskráð verðbréf5.0994.639-46010
Ríkissjóðs2.1441.685-46010
Annarra2.9542.95400
Kröfur á innlánsstofnanir54.05383.37829.3254.632
Kröfur á aðrar fjármálastofnanir22.7745.574-17.2002
Skuldaliðir:
Erlendar skuldir til skamms tíma14.97915.377398366
Seðlar og mynt9.1749.336162244
Almennar innstæður innlánsstofnana9651.279314150
Staða á bindireikningum innlánsstofnana17.67829.24611.5683.169
Almennar innstæður annarra fjármálastofnana8371.170333681
Staða á bindireikningum annarra fjármálastofnana1.2881.393105171
Liðir til skýringar :
Gjaldeyrisstaða Seðlabankans, nettó:21.59519.977-1.618-1.412
Kröfur á ríkissjóð og ríkisstofnanir, nettó:-31.099-29.3781.721905
Kröfur á aðra, brúttó76.93289.01712.0854.604
Grunnfé:27.81739.86112.0453.563

Skýringar:

Gjaldeyrisforði sýnir brúttóeign Seðlabankans í erlendum gjaldeyri. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs sýna eign bankans í spariskírteinum ríkissjóðs, ríkisbréfum og ríkisvíxlum. Markaðsskráð verðbréf annarra eru húsbréf og húsnæðisbréf. Kröfur á innlánsstofnanir eru brúttókröfur bankans á innláns­stofnanir. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir eru brúttókröfur bankans á þessar stofnanir. Erlendar skuldir til skamms tíma sýna skammtímalán sem Seðlabankinn tekur við og við, m.a. í því skyni að styrkja gjaldeyrisforðann. Seðlar og mynt sýna heildarfjárhæð seðla og myntar í umferð utan Seðlabanka.  Almennar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður þeirra á viðskiptareikningum í Seðlabankanum og bundnar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður sem þeim er skylt að eiga í Seðlabankanum í samræmi við bindiskyldu sem bankinn ákveður. Neðanmáls eru sýndir fjórir liðir til skýringar, í fyrsta lagi nettógjaldeyrisstaða Seðlabankans sem sýnir erlendar eignir til skamms tíma að frádregnum erlendum skuldum til skamms tíma, í öðru lagi nettókröfur Seðlabankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir, þ.e. skuldir þessara aðila við Seðlabankann að frádregnum innstæðum þeirra í bankanum, í þriðja lagi innlendar brúttókröfur á aðra en ríkið, og í fjórða lagi grunnfé bankans en til þess teljast seðlar og mynt í umferð og innstæður innlánsstofnana í Seðlabankanum.

Nr. 24/2002
4. júlí 2002