Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka vexti bankans íendurhverfum viðskiptum við lánastofnanir um 0,5 prósentur í 6,3% frá næstauppboði sem haldið verður 12. nóvember n.k. Aðrir vextir Seðlabankans verðalækkaðir um 0,5 prósentur 11. nóvember n.k.
Til grundvallar ákvörðun bankastjórnar um lækkun vaxta nú eru verðbólguspábankans og mat á ástandi og horfum í efnahagsmálum, þ.m.t. þjóðhagsspá, sem birtvoru í ársfjórðungsriti bankans Peningamálum á heimasíðu hans í dag. Vísað er íritið um rökstuðning að baki ákvörðuninni.
Nánari upplýsingar veitir Birgir Ísleifur Gunnarsson, formaður bankastjórnarSeðlabanka Íslands í síma 569-9600.
Nr. 38/2002
6. nóvember 2002