Meginmál

Endurhverf verðbréfakaup fyrir 54,4 milljarða króna

ATH: Þessi grein er frá 26. nóvember 2002 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Í samræmi við reglur um viðskipti Seðlabanka Íslands við lánastofnanir fórfram uppboð á endurhverfum verðbréfasamningum í dag, þriðjudaginn 26. nóvember.Samningstíminn er 14 dagar, en þá hverfa verðbréfin til fyrri eigenda á ný.

Notuð var fastverðsaðferð og bauðst Seðlabankinn til að kaupa verðbréf áávöxtunarkröfunni 6,3%. Engin fjárhæðarmörk voru í uppboðinu. Samtals bárusttilboð að fjárhæð 54,4 milljarðar króna en á innlausn voru 55 milljarðar króna.Næsta uppboð er fyrirhugað 3. desember n.k.

Línuritið sýnir stöðu samninga um endurhverf viðskipti Seðlabankans ágrundvelli reglubundinna uppboða. Auk þeirra á Seðlabankinn viðskipti við ríkiog lánastofnanir sem einnig hafa áhrif á lausafjármyndun.

Nánari upplýsingar veitir Tómas Örn Kristinsson framkvæmdastjóripeningamálasviðs, í síma 569-9664.

Nr.48 /2002

26. nóvember 2002