Í samræmi við reglur um viðskipti Seðlabanka Íslands við lánastofnanir fórfram uppboð á endurhverfum verðbréfasamningum í dag, þriðjudaginn 3. desember.Samningstíminn er 14 dagar, en þá hverfa verðbréfin til fyrri eigenda áný.
Notuð var fastverðsaðferð og bauðst Seðlabankinn til að kaupa verðbréf áávöxtunarkröfunni 6,3%. Engin fjárhæðarmörk voru í uppboðinu. Samtals bárusttilboð að fjárhæð 27,9 milljarðar króna en á innlausn voru 29,3 milljarðarkróna. Næsta uppboð er fyrirhugað 10. desember n.k.
Nánari upplýsingar veitir Tómas Örn Kristinsson framkvæmdastjóripeningamálasviðs, í síma 569-9664.
Nr. 49/2002
3. desember 2002