Meginmál

Yfirlitsritið The Economy of Iceland komið út

ATH: Þessi grein er frá 4. desember 2002 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

SeðlabankiÍslands hefur um nokkurt árabil gefið út á ensku ritið TheEconomy of Iceland. Í ritinu er að finna yfirlit yfir nýlegaþróun efnahagsmála á Íslandi, en auk þess eru í ritinu kaflar um land og þjóð,hagþróun undanfarinna áratuga, um formgerð íslensks efnahagslífs, fjármálakerfið,hið opinbera, peningastefnu, erlendar skuldir, auk töfluefnis. Ritið er 68blaðsíður að stærð og er aðgengilegt á vef Seðlabanka Íslands.