Fara beint í Meginmál

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands 5. desember 2002

Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok nóvember 2002 og til samanburðar í lok desember 2001 ásamt breytingum í nóvember 2002 og frá ársbyrjun 2002.

Gjaldeyrisforði Seðlabankans stóð í stað milli mánaða og nam 36,5 milljörðum króna í lok mánaðarins (jafnvirði 426 milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok).  Erlend skammtímalán bankans hækkuðu um 2,7 milljarða króna í mánuðinum og námu 16,4 milljörðum króna í lok hans.  Þessar breytingar má rekja til lánahreyfinga ríkissjóðs.

Seðlabankinn keypti gjaldeyri á innlendum millibankamarkaði fyrir 1,0 milljarð króna, og er það er í samræmi við áætlun hans um aðgerðir til að styrkja gjaldeyrisstöðu sína sem kynnt var í fréttatilkynningu bankans nr. 28/2002. Gengi íslensku krónunnar styrktist í mánuðinum um 1,3%.

Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 5,2 milljörðum króna í nóvemberlok miðað við markaðsverð. Þar af námu markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs 1,8 milljörðum króna.

Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir jukust um 1,2 milljarða króna í nóvember og námu 79,1 milljarði króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir stóðu því sem næst í stað í mánuðinum og námu 8,1 milljarði króna í mánaðarlok.

Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir jukust um 4,4 milljarða króna í nóvember og námu nettóinnstæður ríkissjóðs 26,2 milljörðum króna í lok mánaðarins.

Grunnfé bankans jókst í nóvember um 2,4 milljarða króna og nam það 40,2 milljörðum króna í mánaðarlok.

Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

Helstu liðir í efnahagsreikningi S.Í. ' m.kr.
Staða í lok tímabilsHreyfingar 2002
DesemberNóvemberFrá ára-Í nóvember
Eignaliðir :20012002mótum
Gjaldeyrisforði36.57336.545-291
Markaðsskráð verðbréf5.0995.1656641
Ríkissjóðs2.1441.795-34911
Annarra2.9543.36941531
Kröfur á innlánsstofnanir54.05379.12325.0701.241
Kröfur á aðrar fjármálastofnanir22.7748.096-14.67862
Skuldaliðir:
Erlendar skuldir til skamms tíma14.97916.4041.4252.678
Seðlar og mynt9.1749.275101230
Almennar innstæður innlánsstofnana9651.3313661.078
Staða á bindireikningum innlánsstofnana17.67829.58411.9061.056
Almennar innstæður annarra fjármálastofnana837790-47512
Staða á bindireikningum annarra fjármálastofnana1.2881.30517316
Liðir til skýringar :
Gjaldeyrisstaða Seðlabankans, nettó:21.59520.141-1.454-2.677
Kröfur á ríkissjóð og ríkisstofnanir, nettó:-31.099-26.1514.9484.374
Kröfur á aðra, brúttó76.93287.31410.3821.298
Grunnfé:27.81740.19012.3742.364

Skýringar:
Gjaldeyrisforði sýnir brúttóeign Seðlabankans í erlendum gjaldeyri. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs sýna eign bankans í spariskírteinum ríkissjóðs, ríkisbréfum og ríkisvíxlum. Markaðsskráð verðbréf annarra eru húsbréf og húsnæðisbréf. Kröfur á innlánsstofnanir eru brúttókröfur bankans á innlánsstofnanir. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir eru brúttókröfur bankans á þessar stofnanir. Erlendar skuldir til skamms tíma sýna skammtímalán sem Seðlabankinn tekur við og við, m.a. í því skyni að styrkja gjaldeyrisforðann. Seðlar og mynt sýna heildarfjárhæð seðla og myntar í umferð utan Seðlabanka.  Almennar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður þeirra á viðskiptareikningum í Seðlabankanum og bundnar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður sem þeim er skylt að eiga í Seðlabankanum í samræmi við bindiskyldu sem bankinn ákveður. Neðanmáls eru sýndir fjórir liðir til skýringar, í fyrsta lagi nettógjaldeyrisstaða Seðlabankans sem sýnir erlendar eignir til skamms tíma að frádregnum erlendum skuldum til skamms tíma, í öðru lagi nettókröfur Seðlabankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir, þ.e. skuldir þessara aðila við Seðlabankann að frádregnum innstæðum þeirra í bankanum, í þriðja lagi innlendar brúttókröfur á aðra en ríkið, og í fjórða lagi grunnfé bankans en til þess teljast seðlar og mynt í umferð og innstæður innlánsstofnana í Seðlabankanum.

Nr. 43/2002
5. desember 2002