Laugardaginn 12. apríl 2003 var haldinn í Washingtonfundur fjárhagsnefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (International Monetary andFinancial Committee). Ísland hefur í rúmt ár gegnt formennsku í kjördæmiNorðurlanda og Eystrasaltsríkja Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Geir H. Haarde,fjármálaráðherra, situr í nefndinni og talar fyrir hönd kjördæmisins. Ínefndinni sitja 24 fulltrúar sem eru ráðherrar eða seðlabankastjórar þeirraríkja sem fara með forystu í einstökum kjördæmum sjóðsins. AðildarríkiAlþjóðagjaldeyrissjóðsins eru nú 184 að tölu.
Á fundinum fjallaði fjármálaráðherra um stöðu og horfur íalþjóðaefnahagsmálum og lagði m.a. áherslu á mikilvægi þess að fylgja ábyrgriefnahagsstefnu. Jafnframt lýsti hann yfir stuðningi við að koma á fót formleguverklagi til að leysa úr erfiðleikum ríkja sem komin eru í greiðsluþrot. Þáfjallaði fjármálaráðherra um mikilvægi eftirlitshlutverks sjóðsins oghvernig mætti efla það. Að lokum áréttaði ráðherrann mikilvægi þess að skilyrðitil hagvaxtar hjá þróunarlöndum yrðu bætt og þeim gert kleift að taka virkariþátt í alþjóðasamfélaginu. Jafnframt þyrfti að tryggja greið viðskiptiþróunarlandanna bæði sín á milli og við iðnríkin.
Á fundi nefndarinnar var fjallað um ástand og horfur í heimsbúskapnum semhefur að undanförnu einkennst af mikilli óvissu. Nefndin ítrekaði stuðning sinnvið aðgerðir til að efla hagvöxt og skjóta styrkari stoðum undirheimsbúskapinn.
Verkefni og stefnumál Alþjóðagjaldeyrissjóðsins voru einnig til umræðu. Efstá baugi var umfjöllun um fyrirbyggjandi aðgerðir gegn fjármálakreppum og hvernigsé farsælast að leysa úr þeim. Framkvæmdastjóri sjóðsins gerði grein fyrirathugunum sem miða að því að koma á fót formlegu verklagi til að leysagreiðsluerfiðleika þeirra ríkja sem komin eru í greiðsluþrot (Sovereign DebtRestructuring Mechanism). Þessu var vel tekið en þó talið að þróa þyrftihugmyndina betur áður en lengra væri haldið. Fundarmenn álitu að nauðsynlegtværi að alþjóðasamfélagið einbeitti sér að því að setja viðbótarákvæði ískilmála skuldabréfa, sem veitir meirihluta skuldabréfaeigenda ákvörðunarvaldtil skuldbreytinga (e. Collective Action Clauses). Málefni þróunarlanda vorurædd og hlutverk sjóðsins á þeim vettvangi.
Ræða Geirs H. Haarde fjármálaráðherra er birt í heildsinni á vefsíðum fjármálaráðuneytisins og Seðlabanka Íslands ásamt ályktun fundarnefndarinnar .
Nánari upplýsingar að öðru leyti veita seðlabankastjórar og Jón Þ.Sigurgeirsson framkvæmdastjóri alþjóðasviðs Seðlabanka Íslands í síma569-9600.
11/2003
14. apríl2003