Fara beint í Meginmál

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands 7. maí 2003

Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok apríl 2003 og til samanburðar í lok desember 2002 ásamt breytingum í apríl 2003 og frá ársbyrjun 2003.

Gjaldeyrisforði Seðlabankans jókst um 2,6 milljarða króna milli mánaða og nam 38,5 milljörðum króna í lok apríl (jafnvirði 513 milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok).  Erlend skammtímalán bankans hækkuðu í mánuðinum um 0,9 milljarða króna og námu þau 11,1 milljarði króna í lok hans.

Seðlabankinn keypti gjaldeyri á innlendum millibankamarkaði fyrir 2,1 milljarð króna, og er það er í samræmi við áætlun hans um aðgerðir til að styrkja gjaldeyrisstöðu sína sem kynnt var í fréttatilkynningum bankans nr. 28/2002 og 2/2003 Gengi íslensku krónunnar styrktist í apríl um 0,5%.

Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 4,8 milljörðum króna í apríllok miðað við markaðsverð.  Þar af námu markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs 1,2 milljörðum króna.

Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir lækkuðu um 2,9 milljarða króna í apríl og námu 71 milljarði króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir breyttust óverulega og námu 8,4 milljörðum króna í mánaðarlok.

Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir hækkuðu um 0,8 milljarða króna í apríl og námu nettóinnstæður ríkissjóðs 25,9 milljörðum króna í lok mánaðarins.

Grunnfé bankans lækkaði í apríl um 0,3 milljarða króna og nam það 36,8 milljörðum króna í mánaðarlok.

Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

Nr. 12/2003
7. maí 2003

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabankans
í milljónum króna
Staða í lok tímabilsHreyfingar 2003
DesemberAprílFrá ára-Í
Eignaliðir:20022003mótumapríl
Gjaldeyrisforði37.19438.4991.3042.559
Markaðsskráð verðbréf5.2604.821-440219
Ríkissjóðs1.8161.184-63117
Annarra3.4453.636192201
Kröfur á innlánsstofnanir69.14170.9581.817-2.889
Kröfur á aðrar fjármálastofnanir8.2278.367140292
Skuldaliðir:
Erlendar skuldir til skamms tíma16.49911.060-5.439882
Seðlar og mynt9.5909.421-169317
Almennar innstæður innlánsstofnana1.1642.052888908
Staða á bindireikningum innlánsstofnana21.83725.3643.527-1.468
Almennar innstæður annarra fjármálastofnana75982219
Staða á bindireikningum annarra fjármálastofnana1.258713-545-3
Liðir til skýringar:
Gjaldeyrisstaða Seðlabankans, nettó:20.69627.4396.7431.677
Kröfur á ríkissjóð og ríkisstofnanir, nettó:-20.846-25.885-5.039822
Kröfur á aðra, brúttó77.45479.4341.980-2.615
Grunnfé:32.59036.8374.246-242

Skýringar:

Gjaldeyrisforði sýnir brúttóeign Seðlabankans í erlendum gjaldeyri. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs sýna eign bankans í spariskírteinum ríkissjóðs, ríkisbréfum og ríkisvíxlum. Markaðsskráð verðbréf annarra eru húsbréf og húsnæðisbréf. Kröfur á innlánsstofnanir eru brúttókröfur bankans á innláns­stofnanir. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir eru brúttókröfur bankans á þessar stofnanir. Erlendar skuldir til skamms tíma sýna skammtímalán sem Seðlabankinn tekur við og við, m.a. í því skyni að styrkja gjaldeyrisforðann. Seðlar og mynt sýna heildarfjárhæð seðla og myntar í umferð utan Seðlabanka. Almennar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður þeirra á viðskiptareikningum í Seðlabankanum og bundnar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður sem þeim er skylt að eiga í Seðlabankanum í samræmi við bindiskyldu sem bankinn ákveður. Neðanmáls eru sýndir fjórir liðir til skýringar, í fyrsta lagi nettógjaldeyrisstaða Seðlabankans sem sýnir erlendar eignir til skamms tíma að frádregnum erlendum skuldum til skamms tíma, í öðru lagi nettókröfur Seðlabankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir, þ.e. skuldir þessara aðila við Seðlabankann að frádregnum innstæðum þeirra í bankanum, í þriðja lagi innlendar brúttókröfur á aðra en ríkið, og í fjórða lagi grunnfé bankans en til þess teljast seðlar og mynt í umferð og innstæður innlánsstofnana í Seðlabankanum.