Fara beint í Meginmál

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands 5. júní 2003

Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok maí 2003 og til samanburðar í lok desember 2002 ásamt breytingum í maí 2003 og frá ársbyrjun 2003.

Gjaldeyrisforði Seðlabankans dróst saman um 1,6 milljarða króna milli mánaða og nam 36,9 milljörðum króna í lok maí (jafnvirði 518 milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok).  Erlend skammtímalán bankans lækkuðu í mánuðinum um 1,2 milljarða og námu þau 9,9 milljörðum króna í lok hans.

Seðlabankinn keypti gjaldeyri á innlendum millibankamarkaði fyrir 2,8 milljarða króna í maí, og er það er í samræmi við áætlun hans um aðgerðir til að styrkja gjaldeyrisstöðu sína sem m.a. var greint frá í maíhefti Peningamála. Þrátt fyrir þessi gjaldeyriskaup lækkaði gjaldeyrisforðinn og er það rakið til lánahreyfinga ríkissjóðs, lækkunar á erlendum skammtímalánum bankans og styrkingar krónunnar en gengi íslensku krónunnar hækkaði um rúmlega 1% í maí.

Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 4,3 milljörðum króna í maílok miðað við markaðsverð. Þar af námu markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs 1,2 milljörðum króna.

Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir lækkuðu um 4,7 milljarða króna í maí og námu 66,3 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir lækkuðu um 0,5 milljarða króna og námu 7,9 milljörðum króna í mánaðarlok.

Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir hækkuðu um 0,1 milljarð króna í maí og námu nettóinnstæður ríkissjóðs 25,8 milljörðum króna í lok mánaðarins.

Grunnfé bankans lækkaði í maí um 4,2 milljarða króna og nam það 32,6 milljörðum króna í mánaðarlok.

Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

Nr. 15/2003

5. júní 2003

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabankans
Í milljónum króna
Staða í lok tímabilsHreyfingar 2003
DesemberMaíFrá ára-Í
Eignaliðir :20022003mótummaí
Gjaldeyrisforði37.19436.924-271-1.575
Markaðsskráð verðbréf5.2604.286-974-535
Ríkissjóðs1.8161.194-62210
Annarra3.4453.092-353-544
Kröfur á innlánsstofnanir69.14166.255-2.886-4.703
Kröfur á aðrar fjármálastofnanir8.2277.890-337-477
Skuldaliðir:
Erlendar skuldir til skamms tíma16.4999.857-6.642-1.203
Seðlar og mynt9.5909.66980248
Almennar innstæður innlánsstofnana1.1641.593429-459
Staða á bindireikningum innlánsstofnana21.83721.371-466-3.993
Almennar innstæður annarra fjármálastofnana7511-64-86
Staða á bindireikningum annarra fjármálastofnana1.258672-585-40
Liðir til skýringar:
Gjaldeyrisstaða Seðlabankans, nettó:20.69627.0676.371-372
Kröfur á ríkissjóð og ríkisstofnanir, nettó:-20.846-25.830-4.98455
Kröfur á aðra, brúttó77.45474.253-3.201-5.181
Grunnfé:32.59032.63343-4.203

Skýringar:

Gjaldeyrisforði sýnir brúttóeign Seðlabankans í erlendum gjaldeyri. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs sýna eign bankans í spariskírteinum ríkissjóðs, ríkisbréfum og ríkisvíxlum. Markaðsskráð verðbréf annarra eru húsbréf og húsnæðisbréf. Kröfur á innlánsstofnanir eru brúttókröfur bankans á innláns­stofnanir. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir eru brúttókröfur bankans á þessar stofnanir. Erlendar skuldir til skamms tíma sýna skammtímalán sem Seðlabankinn tekur við og við, m.a. í því skyni að styrkja gjaldeyrisforðann. Seðlar og mynt sýna heildarfjárhæð seðla og myntar í umferð utan Seðlabanka.  Almennar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður þeirra á viðskiptareikningum í Seðlabankanum og bundnar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður sem þeim er skylt að eiga í Seðlabankanum í samræmi við bindiskyldu sem bankinn ákveður. Neðanmáls eru sýndir fjórir liðir til skýringar, í fyrsta lagi nettógjaldeyrisstaða Seðlabankans sem sýnir erlendar eignir til skamms tíma að frádregnum erlendum skuldum til skamms tíma, í öðru lagi nettókröfur Seðlabankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir, þ.e. skuldir þessara aðila við Seðlabankann að frádregnum innstæðum þeirra í bankanum, í þriðja lagi innlendar brúttókröfur á aðra en ríkið, og í fjórða lagi grunnfé bankans en til þess teljast seðlar og mynt í umferð og innstæður innlánsstofnana í Seðlabankanum.