Fara beint í Meginmál

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands 4. júlí 2003

Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok júní 2003 og til samanburðar í lok desember 2002 ásamt breytingum í júní 2003 og frá ársbyrjun 2003.

Gjaldeyrisforði Seðlabankans stóð því sem næst í stað milli mánaða og nam 36,9 milljörðum króna í lok júní (jafnvirði 483 milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok).  Erlend skammtímalán bankans lækkuðu í mánuðinum um 5,5 milljarða króna og námu þau 4,3 milljörðum króna í lok hans.

Seðlabankinn keypti gjaldeyri á innlendum millibankamarkaði fyrir 3,5 milljarða króna í júní, og er það er í samræmi við áætlun hans um aðgerðir til að styrkja gjaldeyrisstöðu sína sem m.a var greint frá í maíhefti Peningamála.  Gengi íslensku krónunnar veiktist um 4,3% í júní.

Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 4,3 milljörðum króna í júnílok miðað við markaðsverð. Þar af námu markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs 1,2 milljörðum króna.

Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir lækkuðu um 3,4 milljarða króna í júní og námu 62,8 milljarði króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir hækkuðu lítillega og námu 8,0 milljörðum króna í mánaðarlok.

Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir hækkuðu um 1,4 milljarða króna í júní og námu nettóinnstæður ríkissjóðs 24,5 milljörðum króna í lok mánaðarins.

Grunnfé bankans hækkaði í júní um 1,7 milljarða króna og nam það 34,4 milljarði króna í mánaðarlok.

Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabankans
Í milljónum króna
Staða í lok tímabilsHreyfingar 2003
DesemberJúníFrá ára-Í
Eignaliðir :20022003mótumjúní
Gjaldeyrisforði37.19436.883-312-43
Gull1.7271.663-6342
Erlendur gjaldeyrir33.41833.225-193-191
SDR127-50
Gjaldeyrisstaða IMF2.0381.987-51105
Markaðsskráð verðbréf5.2604.328-93242
Ríkissjóðs1.8161.209-60616
Annarra3.4453.119-32627
Kröfur á innlánsstofnanir69.14162.844-6.297-3.411
Kröfur á aðrar fjármálastofnanir8.2278.025-202135
Skuldaliðir:
Erlendar skuldir til skamms tíma16.4994.330-12.169-5.527
Seðlar og mynt9.5909.935345266
Almennar innstæður innlánsstofnana1.1642.5951.4301.001
Staða á bindireikningum innlánsstofnana21.83721.809-27439
Almennar innstæður annarra fjármálastofnana7513-631
Staða á bindireikningum annarra fjármálastofnana1.258786-472113
Liðir til skýringar :
Gjaldeyrisstaða Seðlabankans, nettó20.69632.55311.8575.484
Kröfur á ríkissjóð og ríkisstofnanir, nettó-20.846-24.455-3.6091.375
Kröfur á aðra, brúttó77.45470.986-6.469-3.268
Grunnfé32.59034.3391.7491.706

Skýringar:

Gjaldeyrisforði sýnir brúttóeign Seðlabankans í erlendum gjaldeyri. Erlendur gjaldeyrir sýnir innstæður í erlendum bönkum og erlenda verðbréfaeign bankans. Gjaldeyrisstaða við IMF sýnir hreina innstæðu bankans hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs sýna eign bankans í spariskírteinum ríkissjóðs, ríkisbréfum og ríkisvíxlum. Markaðsskráð verðbréf annarra eru húsbréf og húsnæðisbréf. Kröfur á innlánsstofnanir eru brúttókröfur bankans á innláns­stofnanir. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir eru brúttókröfur bankans á þessar stofnanir. Erlendar skuldir til skamms tíma sýna skammtímalán sem Seðlabankinn tekur við og við, m.a. í því skyni að styrkja gjaldeyrisforðann. Seðlar og mynt sýna heildarfjárhæð seðla og myntar í umferð utan Seðlabanka.  Almennar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður þeirra á viðskiptareikningum í Seðlabankanum og bundnar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður sem þeim er skylt að eiga í Seðlabankanum í samræmi við bindiskyldu sem bankinn ákveður. Neðanmáls eru sýndir fjórir liðir til skýringar, í fyrsta lagi nettógjaldeyrisstaða Seðlabankans sem sýnir erlendar eignir til skamms tíma að frádregnum erlendum skuldum til skamms tíma, í öðru lagi nettókröfur Seðlabankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir, þ.e. skuldir þessara aðila við Seðlabankann að frádregnum innstæðum þeirra í bankanum, í þriðja lagi innlendar brúttókröfur á aðra en ríkið, og í fjórða lagi grunnfé bankans en til þess teljast seðlar og mynt í umferð og innstæður innlánsstofnana í Seðlabankanum.

Nr. 20/2003

4. júlí 2003