Fara beint í Meginmál

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands 7. ágúst 2003

Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok júlí 2003 og til samanburðar í lok desember 2002 ásamt breytingum í júlí 2003 og frá ársbyrjun 2003.

Gjaldeyrisforði Seðlabankans minnkaði lítillega á milli mánaða og nam 36,5 milljörðum króna í lok júlí (jafnvirði 471 milljónar Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Erlend skammtímalán bankans lækkuðu í mánuðinum um 4,1 milljarð króna og námu 0,3 milljörðum króna í lok hans.

Seðlabankinn keypti gjaldeyri á innlendum millibankamarkaði fyrir 4,4 milljarða króna í júlí í samræmi við áætlun hans um aðgerðir til að styrkja gjaldeyrisstöðu sína sem m.a var greint frá í maíhefti Peninga­mála 2003. Gengi íslensku krónunnar lækkaði um 0,5% í júlí.

Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 4,3 milljörðum króna í júlílok miðað við markaðsverð. Þar af námu markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs 1,2 milljörðum króna.

Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir hækkuðu um 4,1 milljarð króna í júlí og námu 70 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir stóðu í stað og námu 8 milljörðum króna í mánaðarlok.

Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir lækkuðu um 4,2 milljarða króna í júlí og námu nettóinnstæður ríkissjóðs 28,7 milljörðum króna í lok mánaðarins.

Grunnfé bankans hækkaði í júlí um 3,5 milljarða króna og nam 37,8 milljörðum króna í mánaðarlok.

Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabankans
Í milljónum króna
Staða í lok tímabilsHreyfingar 2003
DesemberJúlíFrá ára-Í
Eignaliðir :20022003mótumjúlí
Gjaldeyrisforði37.19436.502-693-381
Gull1.7271.731467
Erlendur gjaldeyrir33.41832.762-656-463
SDR127-50
Gjaldeyrisstaða IMF2.0382.002-3615
Markaðsskráð verðbréf5.2604.277-983-51
Ríkissjóðs1.8161.215-6006
Annarra3.4453.061-383-57
Kröfur á innlánsstofnanir69.14166.989-2.1514.146
Kröfur á aðrar fjármálastofnanir8.2278.006-221-19
Skuldaliðir:
Erlendar skuldir til skamms tíma16.499278-16.220-4.052
Seðlar og mynt9.59010.555965620
Almennar innstæður innlánsstofnana1.164624-541-1.971
Staða á bindireikningum innlánsstofnana21.83726.6384.8024.829
Almennar innstæður annarra fjármálastofnana7516-593
Staða á bindireikningum annarra fjármálastofnana1.258954-304168
Liðir til skýringar :
Gjaldeyrisstaða Seðlabankans, nettó:20.69636.22415.5283.671
Kröfur á ríkissjóð og ríkisstofnanir, nettó:-20.846-28.671-7.825-4.216
Kröfur á aðra, brúttó77.45475.102-2.3524.116
Grunnfé:32.59037.8165.2263.477

Nr. 21/2003

7. ágúst 2003

Skýringar:

Gjaldeyrisforði sýnir brúttóeign Seðlabankans í erlendum gjaldeyri. Erlendur gjaldeyrir sýnir innstæður í erlendum bönkum og erlenda verðbréfaeign bankans. Gjaldeyrisstaða við IMF sýnir hreina innstæðu bankans hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs sýna eign bankans í spariskírteinum ríkissjóðs, ríkisbréfum og ríkisvíxlum. Markaðsskráð verðbréf annarra eru húsbréf og húsnæðisbréf. Kröfur á innlánsstofnanir eru brúttókröfur bankans á innláns­stofnanir. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir eru brúttókröfur bankans á þessar stofnanir. Erlendar skuldir til skamms tíma sýna skammtímalán sem Seðlabankinn tekur við og við, m.a. í því skyni að styrkja gjaldeyrisforðann. Seðlar og mynt sýna heildarfjárhæð seðla og myntar í umferð utan Seðlabanka.  Almennar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður þeirra á viðskiptareikningum í Seðlabankanum og bundnar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður sem þeim er skylt að eiga í Seðlabankanum í samræmi við bindiskyldu sem bankinn ákveður. Neðanmáls eru sýndir fjórir liðir til skýringar, í fyrsta lagi nettógjaldeyrisstaða Seðlabankans sem sýnir erlendar eignir til skamms tíma að frádregnum erlendum skuldum til skamms tíma, í öðru lagi nettókröfur Seðlabankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir, þ.e. skuldir þessara aðila við Seðlabankann að frádregnum innstæðum þeirra í bankanum, í þriðja lagi innlendar brúttókröfur á aðra en ríkið, og í fjórða lagi grunnfé bankans en til þess teljast seðlar og mynt í umferð og innstæður innlánsstofnana í Seðlabankanum.