Fara beint í Meginmál

Greiðslujöfnuður við útlönd á fyrri árshelmingi 2003 og erlend staða þjóðarbúsins 1. september 2003

Samkvæmt bráðabirgðauppgjöri Seðlabanka Íslands var 17,9 milljarða króna viðskiptahalli við útlönd á fyrstu sex mánuðum ársins 2003 samanborið við 2,9 milljarða króna halla á sama tíma 2002. Viðskiptahallinn á öðrum ársfjórðungi nam 15,2 milljörðum króna samanborið við 1,5 milljarða króna halla á sama tíma í fyrra. Útflutningur vöru og þjónustu minnkaði á fyrri árshelmingi um 2,3% en innflutningur jókst um 10,2% frá sama tíma í fyrra reiknað á föstu gengi1. Hallinn á jöfnuði þáttatekna (launa, vaxta og arðs af fjárfestingum) og rekstrarframlögum nettó var um 9 milljarðar króna á fyrri árshelmingi 2003, nokkru minni en í fyrra.

Greiðslujöfnuður við útlönd í milljörðum króna

Ársfjórðungar:Apríl-júníJanúar-júní
2002200320022003
Viðskiptajöfnuður-1,5-15,2-2,9-17,9
Útflutningur vöru og þjónustu79,366,4155,7137
Innflutningur vöru og þjónustu-75,5-78,5-147-145,9
Þáttatekjur og framlög, nettó-5,2-3-11,6-9
Fjármagnsjöfnuður11,920,327,740,5
Hreyfingar án forða1420,430,840,8
Gjaldeyrisforði (- aukning)-2,10-3,1-0,2
Skekkjur og vantalið, nettó-10,4-5,2-24,8-22,7

Hreint fjárinnstreymi mældist 40,5 milljarðar króna á fyrri árshelmingi 2003 og skýrist að stærstum hluta af erlendum lántökum og skuldabréfaútgáfu í útlöndum, en einnig var 11,8 ma.kr. fjárinnstreymi vegna kaupa erlendra aðila á skuldabréfum útgefnum á Íslandi. Fjárútstreymi vegna erlendra verðbréfakaupa nam 14,1 milljarði króna sem er ríflega helmingi meira en árið áður. Önnur eignamyndun í útlöndum var mikil á fyrri hluta ársins 2003, einkum jukust erlendar innstæður bankanna. Nokkurt fjárútstreymi varð vegna sölu erlendra aðila á eignarhlut sínum í atvinnurekstri á Íslandi á fyrri hluta ársins.Gjaldeyrisforði Seðlabankans nam 36,9 milljörðum króna í júnílok og hafði lítið breyst frá ársbyrjun.

Í dag mánudaginn 1. september 2003 birtist töfluyfirlit um greiðslujöfnuð við útlönd og erlenda stöðu í hagtölum Seðlabankans á heimasíðu hans: (www.sedlabanki.is).

Nánari upplýsingar veitir Jakob Gunnarsson, deildarstjóri á tölfræðisviði Seðlabanka Íslands, í síma 569-9600.

1. Viðskiptavegin gengisvísitala var 9,9% lægri á fyrri árshelmingi 2003 en á sama tímabili í fyrra.

Fréttin í heild með töflum (pdf)

Nr. 22/2003
1. september 2003