Meginmál

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands

ATH: Þessi grein er frá 4. september 2003 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands ílok ágúst 2003 og til samanburðar í lok desember 2002 ásamt breytingum í ágúst2003 og frá ársbyrjun 2003. 

Gjaldeyrisforði Seðlabankansjókst í mánuðinum um 4,5 milljarða króna og nam 41 milljarði króna í lok ágúst(jafnvirði 512 milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok).  Erlendskammtímalán bankans vegna gjaldeyrisforða eru engin, en um síðustu áramót námuþau rúmlega 16 milljörðum króna.

Seðlabankinn keypti gjaldeyri áinnlendum millibankamarkaði fyrir 4 milljarða króna í ágúst í samræmi við áætlunhans um aðgerðir til að styrkja gjaldeyrisstöðu sína sem m.a var greint frá ímaíhefti Peningamála 2003.  Gengi íslensku krónunnar veiktist um 1,1 % íágústmánuði.

Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 4,3 milljörðumkróna í ágústlok miðað við markaðsverð.  Þar af námu markaðsskráð verðbréfríkissjóðs 1,2 milljörðum króna.

Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanirlækkuðu um 5,4 milljarða króna í ágúst og námu 61,5 milljörðum króna í lokmánaðarins.  Kröfur á aðrar fjármálastofnanir lækkuðu einnig og námu 7,2milljörðum króna í mánaðarlok. 

Nettókröfur bankans á ríkissjóð ogríkisstofnanir hækkuðu um 5,8 milljarða króna í ágúst og námu nettóinnstæðurríkissjóðs 22,8 milljörðum króna í lok mánaðarins.

Grunnfé bankanshækkaði í ágúst um 3,2 milljarða króna og nam 41 milljarði króna í mánaðarlok.

Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og ErlaÁrnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

Nr. 24/2003

4. september 2003