Meginmál

Endurhverf verðbréfakaup fyrir 26,5 milljarða króna

ATH: Þessi grein er frá 9. september 2003 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Í samræmi við reglur um viðskipti Seðlabanka Íslandsvið lánastofnanir fór fram uppboð á endurhverfum verðbréfasamningum í dag,þriðjudaginn 9. september. Samningstíminn er 14 dagar, en þá hverfa verðbréfintil fyrri eigenda á ný.

Notuð var fastverðsaðferð og bauðst Seðlabankinn til að kaupa verðbréf áávöxtunarkröfunni 5,3%. Engin fjárhæðarmörk voru í uppboðinu. Samtals bárusttilboð að fjárhæð 26,5 milljarðar króna en á innlausn voru 24,2 milljarðarkróna. Næsta uppboð er fyrirhugað 16. september n.k.

Línuritið sýnir stöðu samninga um endurhverf viðskipti Seðlabankans ágrundvelli reglubundinna uppboða. Auk þeirra á Seðlabankinn viðskipti við ríkiog lánastofnanir sem einnig hafa áhrif á lausafjármyndun.

Nánari upplýsingar veitir Tómas Örn Kristinsson framkvæmdastjóripeningamálasviðs í síma 569-9664.

Nr. 37/2003

9. sept. 2003