Í meðfylgjandi yfirliti er sýndur efnahagsreikningur Seðlabanka Íslands í lokágúst 2004 og til samanburðar í lok júlí 2004 og í lok desember 2003.
Seðlabankinn keypti gjaldeyri á innlendum millibankamarkaði fyrir 1,6milljarða króna í ágúst í samræmi við áætlun hans um aðgerðir til að styrkjagjaldeyrisstöðu sína (sjá t.d. nóvemberhefti Peningamála 2003). Gjaldeyrisforðibankans jókst um 2,7 milljarða króna í mánuðinum og nam 70,8 milljörðum króna ílok hans sem jafngildir 981 milljón Bandaríkjadala. Gengi krónunnar lækkaði um1,3% í ágúst.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir lækkuðu um 6,4 milljarða króna í ágústog námu 21,1 milljarði króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanirdrógust hins vegar lítillega saman og námu 9,7 milljörðum króna ímánaðarlok.
Skuldir Seðlabankans við innlánsstofnanir drógust saman í mánuðinum um 11,6milljarða króna og námu 23,3 milljörðum króna í lok hans en skuldir við aðrarfjármálastofnanir stóðu því sem næst í stað.
Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 3,2 milljörðum króna í ágústlokmiðað við markaðsverð.
Nettóinnstæður ríkissjóðs og ríkisstofnana hækkuðu um 7,2 milljarða króna íágúst og námu 23,8 milljörðum króna í lok mánaðarins.
Grunnfé bankans lækkaði í ágúst um 12,3 milljarða króna og nam 34,5milljörðum króna í mánaðarlok.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttiraðalbókari í síma 569-9600.
Nr. 25/2004
6. september 2004